ÍLS eykur útgáfu íbúðabréfa um 8 milljarða í ár 10. mars 2010 08:22
Endurskoðuð áætluð útgáfa íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs (ÍLS) fyrir árið 2010 til fjármögnunar nýrra útlána er 42 - 50 milljarðar króna sem er hækkun um 8 milljarða kr. frá fyrri tölum. Hækkunin er í samræmi við fyrirhuguð kaup sjóðsins á íbúðalánasafni samanber tilkynningu til Kauphallar frá 5. mars 2010. Þeta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Íbúðalánasafnið sem hér um ræðir var keypt frá Dróma (SPRON) og Frjálsa fjárfestingarbankanum. Fram kemur ap Íbúðalánasjóður áætlar að ný útlán sjóðsins verði 25 - 33 milljarðar króna á árinu 2010, sem er lækkun um 4 milljarða kr. frá fyrri áætlun. Þar af er gert ráð fyrir að leiguíbúðalán nemi 10-12 milljörðum króna, sem er lækkun um 1 milljarð frá fyrri áætlun. Töluverð óvissa ríkir um útlána- og útgáfuáætlanir í ljósi breyttra aðstæðna á fjármála- og fasteignamarkaði en allmikil lægð hefur verið yfir markaðinum að undanförnu. Nákvæmar tölur um áætluð útlán og útgáfu íbúðabréfa er því ekki hægt að gefa upp. Þannig geta einstöku tölur í útboðum færst á milli ársfjórðunga og veltur það á markaðsaðstæðum hverju sinni. Íbúðalánasjóður áætlar að greiða 65-73 milljarða króna á árinu 2010 vegna fjármögnunarbréfa sinna en það er hækkun um 4 milljarða króna frá fyrri áætlun. Áætlun þessi miðast við núverandi aðstæður á fasteigna- og íbúðalánamarkaði. Verði breytingar á markaðsaðstæðum getur ofangreind áætlun breyst. Íbúðalánasjóður endurskoðar áætlanir sínar ársfjórðungslega og oftar ef þörf krefur.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira