Lausafé Landsvirkunnar nemur 50 milljörðum 11. janúar 2010 15:00
Lausafé Landsvirkjunar í árslok 2009 nam alls um 415 milljónum dollara eða um 50 milljörðum króna. Þá hafa breytingar á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs í kjölfar þess að forseti Íslands synjaði Icesave lögunum staðfestingar ekki áhrif á lánshæfi og kjör Landsvirkjunar á núverandi lánum. Í frétt um málið á vefsíðu Landsvirkjunnar segir að af lausafé Landsvirkjunar í árslok 2009 voru í sjóði um 135 milljónir dollara og 280 milljónir í óádregnu erlendu veltiláni. Lausafé ásamt veltiláni og sjóðstreymi tryggir að fyrirtækið getur staðið við allar núverandi skuldbindingar til 2012. Landsvirkjun stefnir að því að birta ársreikninga vegna ársins 2009 upp úr miðjum mars nk. Í kjölfar ákvörðunar forseta Íslands að vísa Icesave lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu breyttu tvö matsfyrirtæki lánshæfiseinkunn ríkissjóðs. Matsfyrirtækið Fitch Ratings lækkaði langtímaeinkunn ríkissjóðs í erlendum gjaldmiðli í BB+ (neikvæðar horfur) úr BBB- og er einkunnin því í ruslflokki. Á sama tíma setti matsfyrirtækið Standard and Poor´s lánshæfiseinkunn ríkissjóðs á athugunarlista með neikvæðum horfum. Þrátt fyrir þessar breytingar hefur ekki orðið breyting á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar. Fyrirtækið hefur enn lánshæfiseinkunnina Baa3 (neikvæðar horfur) hjá Moody´s sem er í fjárfestingarflokki. Í lánssamningum Landsvirkjunar eru engin ákvæði sem kalla á gjaldfellingu eða breytingar á vöxtum þó að lánshæfiseinkunn lækki frekar. Breytingin á lánshæfi ríkissjóðs hefur því engin áhrif á vaxtakjör á eldri lánum fyrirtækisins. Hún gæti hins vegar haft, að öllu öðru óbreyttu, neikvæð áhrif á aðgengi Landsvirkjunar að nýju lánsfjármagni á ásættanlegum kjörum, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira