Bílaleigan Hertz kaupir 365 Toyotabíla 9. mars 2010 10:35 Sitjandi frá vinstri eru Hendrik Berndsen, stjórnarformaður Hertz, Sigurður Berndsen, fjármálastjóri Hertz, Sigfús B. Sigfússon, framkvæmdastjóri Hertz, og Haraldur Þ. Stefánsson, framkvæmdastjóri Toyota í Kópavogi. Standandi eru Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi og Sigfús R. Sigfússon stjórnarmaður hjá Hertz.
Undirritaður hefur verið samningur milli Toyota í Kópavogi og Bílaleigunnar Hertz um kaup á 365 nýjum Toyota bifreiðum. Þar af eru 283 Yaris, Verso, Auris og Avensis fólksbílar, 50 Rav4 jepplingar og 32 Land Cruiser jeppar.Í tilkynningu segir að bílarnir verða afhentir í vor, og þá verður Hertz sú bílaleiga á landinu sem flesta nýja bíla hefur í flota sínum.„Við lítum björtum augum á rekstur bílaleigunnar á næstu misserum og teljum mikilvægt fyrir ferðaþjónustuna í landinu að til staðar sé öflugur floti bíla sem góð reynsla er af við íslenskar aðstæður. Hertz gerir kröfur um að bílarnir sem leigðir eru út séu ekki eldri en tveggja ára og þannig geta viðskiptavinir okkar verið vissir um að fá nýja og örugga bíla" segir Sigfús B. Sigfússon, framkvæmdastjóri Hertz. „Um 85% viðskiptanna koma erlendis frá og starfsemin skilar því miklum gjaldeyristekjum" segir Sigfús ennfremur.„Okkur þykir vænt um það traust sem Toyota er sýnt og þessi samningur er okkur mikilvægur enda um mikinn fjölda bíla að ræða. Heildarsala á öllum fólksbílum og jeppum á innanlandsmarkaði á síðasta ári var um 2280 bílar þannig að þessi samningur jafngildir um það bil 16% af heildarsölu á innanlandsmarkaði í fyrra" segir Haraldur Þ. Stefánsson, framkvæmdastjóri Toyota í Kópavogi.Samstarf Toyota á Íslandi og Hertz hefur verið mjög náið um langt árabil og er það von stjórnenda beggja fyrirtækja að svo muni verða áfram um ókomin ár.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira