Vodafone hættir að dreifa erótísku efni Óli Kristján Ármannsson skrifar 18. febrúar 2010 06:00 Klám á skjá Vodafone á Íslandi segist ekki lengur selja erótískt efni. Slíkt efni hefur líka verið til sölu í Sjónvarpi Símans í gegnum áskriftapakka og aðgang á vídeóleigunni SkjáBíói. Fréttablaðið/Valli
Vodafone hefur ákveðið að hætta dreifingu og sölu á öllu erótísku efni í gegnum vefgátt fyrir farsíma. Sömuleiðis verður hætt að bjóða svokallað erótískt efni á Leigunni, sem er stafræn leiga á myndefni fyrir sjónvarp. Fyrirtækið greindi frá ákvörðun sinni í fréttatilkynningu í gær, en þá var dreifingu efnisins jafnframt hætt. „Nokkur umræða hefur spunnist um dreifingu á djörfu efni að undanförnu og hafa spjótin beinst að Vodafone fyrir að dreifa þannig efni,“ segir í tilkynningunni og er frá því greint að nokkrir viðskiptavinir hafi haft samband við fyrirtækið og látið í ljós vanþóknun sína á að fyrirtækið dreifi slíku efni. „Vodafone hefur meðtekið þessi skilaboð frá viðskiptavinum og samfélaginu og tekið þá ákvörðun að hætta allri sölu á slíku efni,“ segir þar jafnframt. Úr farsímum Vodafone er aðgangur að fréttum, veðri og íþróttum í gegnum vefgátt Vodafone sem nefnist Vodafone live, en þar hefur þangað til í gær einnig verið hægt að kaupa erótískt myndefni frá efnisveitum utan úr heimi. Þá er í gagnvirku sjónvarpi Vodafone starfrækt Leigan (svokölluð VOD þjónusta, eða video on demand). „Þar hefur verið að finna erótískt efni eftir pöntun. Með þessari ákvörðun Vodafone verður slíkt efni ekki lengur í boði á vefgátt fyrirtækisins eða í stafrænni leigu í sjónvarpinu.“
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira