Um 20 starfsmenn Kaupþings grunaðir 14. maí 2010 00:01 á góðri stundu Ólafur Ragnar Grímsson forseti veitti Kaupþingi útflutningsverðlaun árið 2005. Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson veittu verðlaununum viðtöku. Hreiðar situr nú í gæsluvarðhaldi og Sigurður er eftirlýstur af Interpol.
Um tuttugu starfsmenn Kaupþings, bæði núverandi og fyrrverandi, hafa nú réttarstöðu grunaðra. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, vill ekki tjá sig um rannsóknina að öðru leyti en því að yfirheyrslur stæðu yfir og myndu gera á meðan sakborningar sætu í gæsluvarðhaldi. Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnarformaður Kaupþings sem nú er eftirlýstur af Interpol, er ekki á leið til landsins, að sögn lögmanns hans, Gests Jónssonar. „Hann er reiðubúinn að koma heim ef hann fær vilyrði fyrir því að hann geti snúið aftur af skýrslugjöf lokinni. Þetta er það sem hann hefur tilkynnt lögreglunni, en ég veit ekkert meira um það,“ segir Gestur. Gestur segir Sigurð ætíð hafa verið tilbúinn til að gefa skýrslu með þessum formerkjum. Þá sé hann einnig reiðubúinn til að taka á móti mönnum í Englandi, sé þess óskað. Hann vildi lítið tjá sig um þá staðreynd að Sigurður væri eftirlýstur af Interpol. Í næsta mánuði kemur teymi sérfræðinga frá norsku lögreglunni, Ökokrim, til aðstoðar embættis sérstaks saksóknara. Þá verður starfsmönnum fjölgað við embættið á næstunni, væntanlega nokkrum tugum. Ólafur Þór segir að hjá embættinu séu yfir 40 opin mál þannig að af nógu sé að taka. Hann vill ekkert um það segja hvort fleiri handtökur séu fyrirhugaðar. Þá vill hann ekki segja til hvaða ráða verður gripið varðandi Sigurð. „Við gefum ekkert upp um til hvaða þvingunarúrræða við munum grípa til í framtíðinni; hvort sem það er leit, handtaka eða eitthvað annað.“ Þar vísar Ólafur ekki beint í mál Sigurðar, heldur í starfsemina almennt. Gæsluvarðhald yfir Magnúsi Guðmundssyni rennur út í dag. Ólafur segir óljóst hvort sótt verður um framlengingu þess. „Það liggur ekki fyrir enn þá. Það er enn verið að vinna í yfirheyrslum og við munum taka afstöðu til þess þegar það er kominn botn í það mál.“kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira