Lækkað lánshæfi stöðvar frekari framkvæmdir hjá LV og OR Þorbjörn Þórðarson. skrifar 8. janúar 2010 11:58
Lækkað lánshæfi ríkissjóðs útilokar nýjar framkvæmdir bæði hjá Landsvirkjun og Orkuveitu Reykjavíkur, en bein áhrif lækkunar á rekstur fyrirtækjanna eru óljós fyrst um sinn. Sem kunnugt er lækkaði lánshæfisfyrirtækið Fitch Ratings lánshæfiseinkunn ríkissjóðs niður í ruslflokk í kjölfar synjunar forsetans á Icesave lögunum og búist er við að önnur lánshæfisfyrirtæki geri slíkt hið sama. Paul Rawkins, framkvæmdastjóri hjá Fitch, sagði í samtali við fréttastofu í gær að ákvörðun forsetans gæti leitt til einangrunar landsins og heft aðgengi ríkisfyrirtækja að fjármögnun erlendis. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að lækkun lánshæfiseinkunnar muni án nýrra framkvæmda ekki hafa nein áhrif á rekstur Landsvirkjunar fyrst um sinn. Hann segir að áhrif lækkaðrar lánshæfiseinkunnar, vegna nýrra framkvæmda sem hugsanlega verði ráðist í, muni koma fram á næstu vikum. Hörður segir að ekki séu gjaldfellingarákvæði í lánasamningum Landsvirkjunar. Það þýðir að lánveitendur geta ekki gjaldfellt lán til fyrirtækisins þótt lánshæfiseinkunn ríkissjóðs sé komin niður í rusl. Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir að lækkuð lánshæfiseinkunn geti haft þær afleiðingar að nýjar framkvæmdir á vegum fyrirtækisins frestist. „Ef þetta (lánshæfi í ruslflokki innsk. blaðam) verður til langs tíma mun þetta örugglega hafa áhrif á möguleika okkar að leita lána. (...) Næstu virkjun, sem við ætlum að byrja á á næsta ári, eigum við líka eftir að fjármagna að hluta til, en það er Hverahlíðarvirkjun. Við ætluðum að fara að leita eftir lánsfé í þessa framkvæmd með vorinu, en við verðum að bíða og sjá hvað gerist hér á næstu vikum áður en við reynum það," segir Hjörleifur. Hjörleifur segir að þetta hafi ekki bein áhrif á þau lán sem Orkuveitan er með, enda séu ekki heimildir til gjaldfellingar í lánasamningum fyrirtækisins ef lánshæfið fer niður í ruslflokk.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira