Eyrir samdi við lánardrottna 25. ágúst 2010 03:00 Forstjórinn árni oddur Stjórnendur Eyris Invest sömdu við kröfuhafa eftir hrunið og stokkuðu skuldir upp. Þeim verður breytt þegar nær líður gjalddögum.
Fjárfestingarfélagið Eyrir Invest hagnaðist um 3,2 milljónir evra, jafnvirði um 490 milljóna króna, á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 11,5 milljónir evra á sama tíma í fyrra. Neikvæður gengismunur og beiting hlutdeildaraðferðar á eignir félagsins hafa áhrif á samanburðinn. Eignir Eyris námu 417 milljónum evra, 64 milljörðum króna í lok tímabilsins og nam eigið fé 160 milljónum evra. Eiginfjárhlutfall stóð í 38 prósentum. Á móti námu skuldir 257 milljónum evra, jafnvirði fjörutíu milljarða króna, Þungi afborgana fellur á næstu þremur árum, þar af 124,5 milljónir evra, nítján milljarðar króna, á næsta ári, miðað við hálfsársuppgjör sem birt var á mánudag. Stjórnendur Eyris benda á í samtali við Fréttablaðið að staðan sé sterk. Gjalddagarnir komu til við endurfjármögnun félagsins í fyrravor þegar skuldir voru stokkaðar upp í samvinnu við lánardrottna. Gert er ráð fyrir að lengt verði í lánum fyrir gjalddaga. Afborganir á næsta ári verði mun lægri en fram komi í uppgjörinu, í hæsta lagi nærri tuttugu milljónum evra, jafnvirði þriggja milljarða króna, í stað nítján. - jab
Fréttir Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira