Lækkun lánshæfiseinkunnar S&P mun alvarlegri en Fitch 6. janúar 2010 11:27
Lækki Standard & Poors (S&P) lánshæfiseinkunn Íslands niður úr fjárfestingarflokki eru það töluvert alvarlegri tíðindi en lækkun á einkunn Fitch Ratings, þar sem fyrrnefnda fyrirtækið metur ekki einungis lánshæfi ríkissjóðs heldur einnig lánshæfi Landsvirkjunar og Íbúðalánasjóðs.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem fjallað er um tilkynninguna sem barst frá S&P í gærkvöldi og birt var á heimasíðu Seðlabankans.Í Morgunkorninu segir að í tilkynningu S&P segi að það að lánshæfismat ríkissjóðs hafi verið sett á athugunarlista gefi til kynna að líkur eru á að lánshæfismat verði lækkað ef stjórnmálaleg óvissa fer vaxandi og feli í sér að áfram reyni á greiðslugetu gagnvart útlöndum í kjölfar ákvörðunar forsetans.Líkt og Fitch vísar S&P til þeirrar óvissu sem er um greiðslur frá AGS og Norðurlöndunum sem eiga að styrkja gjaldeyrisvarasjóð Seðlabankans sem nauðsynlegt sé til þess að mögulegt verði með tímanum að losa um gjaldeyrishöft. Telur fyrirtækið ólíklegt að Icesave-málið verði leyst á næstunni, hvort sem stjórnvöld velja að vísa löggjöfinni í þjóðaratkvæðigreiðslu eða að draga hana til baka.S&P reiknar með að komast að niðurstöðu um lánshæfismatið í þessum mánuði þegar frekari upplýsingar liggja fyrir um vilja stjórnvalda til að grípa til aðgerða sem gætu endurvakið tiltrú fjárfesta og aukið aðgengi hins opinbera að erlendu lánsfé.Því mun fyrirtækið væntanlega taka ákvörðun sína áður en úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu liggja fyrir. Í lokin segir S&P að það gæti lækkað einkunnir um eitt til tvö þrep ef málið verði áfram í pólitískum ógöngum eða ef það metur það sem svo að þróun mála hafi haft áhrif á aðgang ríkissjóðs að erlendu lánsfé.
Mest lesið Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Viðskipti innlent Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Viðskipti innlent Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Viðskipti erlent Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Viðskipti innlent Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Samstarf Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Neytendur Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Viðskipti innlent Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Viðskipti innlent Ráðnir forstöðumenn hjá OK Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Sjá meira