Sjóvá í söluferli 15. janúar 2010 16:03 Sjóvá.
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur verið falið að annast formlegt söluferli á Sjóvá-Almennum tryggingum en söluferlið verður opið öllum fjárfestum er uppfylla tilgreind skilyrði samkvæmt tilkynningu frá Sjóvá. Þar segir einnig að tilboðin verða opnuð í viðurvist óháðs aðila. Sjóvá er í dag 90,7 prósent eigu SAT Eignarhaldsfélags og 9,3 prósent í eigu Íslandsbanka. Fjárfestum gefst kostur á því að bjóða í allt að 100 prósent hlutafjár Sjóvár. Söluferlið hefst formlega mánudaginn 18. janúar klukkan tíu um morguninn með birtingu upplýsinga á vef Íslandsbanka á slóðinni www.islandsbanki.is/sjova2010. Söluferlið verður opið öllum áhugasömum fjárfestum sem teljast fagfjárfestar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti og geta sýnt fram á eiginfjárstöðu umfram 500 milljónir króna. Áhugasamir fjárfestar þurfa að fylla út trúnaðaryfirlýsingu sem hægt er að nálgast á heimasíðu Íslandsbanka (www.islandsbanki.is/sjova2010) ásamt því að leggja fram nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem staðfesta að ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Í kjölfarið fá fjárfestar afhent frekari gögn um félagið. Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu þegar fyrir hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna. Jafnframt er vakin athygli á því að samþykki Fjármálaeftirlitsins er skilyrði fyrir því að fjárfestir geti farið með virkan eignarhlut í tryggingafélagi. Þeim fjárfestum sem leggja fram hæstu tilboðin og sýna fram á fjárhagslega burði til að standa við þau, verður boðið til áframhaldandi þátttöku í söluferlinu. Fá þeir þá aðgang að nánari upplýsingum um starfsemi og fjárhag fyrirtækisins. Tilboð verða opnuð í viðurvist óháðs aðila.
Mest lesið Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Fleiri fréttir Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Sjá meira