Hagnaður Stoða nam 1,2 milljörðum í fyrra 26. mars 2010 15:41
Hagnaður Stoða af reglubundinni starfsemi félagsins á síðasta ári nam 1,2 milljörðum kr. Á aðalfundi Stoða í dag var ársreikningur Stoða fyrir árið 2009 lagður fram. Bókfært verðmæti eigna Stoða þann 31. desember 2009 var 33,5 milljarðar króna og skuldir félagsins, sem allar eru til langs tíma, námu 10 milljörðum króna. Eigið fé Stoða í árslok 2009 nam því 23,5 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall félagsins var 70%.Í tilkynningu segir að fjárhagslegri endurskipulagningu Stoða lauk um mitt síðasta ár, samhliða nauðasamningum við kröfuhafa sem í kjölfarið eignuðust allt hlutafé í Stoðum. Í ársreikningi fyrir árið 2009 er bókfærð tekjufærsla vegna eftirgefinna skulda í tengslum við nauðasamninga, og nemur bókfærður hagnaður á árinu 2009 því 212 milljörðum króna. Starfsemi Stoða var með reglubundnum hætti á seinni hluta ársins og nam hagnaður þess tímabils 1.209 milljónum króna. Helstu eignir Stoða eru 99,9% hlutur í Tryggingamiðstöðinni (TM) og 40% hlutur í evrópska drykkjarvöruframleiðandanum Refresco, en í gær var tilkynnt um kaup fjárfestingafélagsins 3i á 20% hlut í Refresco fyrir 84 milljónir evra. Meðal annarra eigna Stoða má nefna eignarhluti í Royal Unibrew, Nordicom og Inspired Gaming. Hluthafar Stoða eru nú 109 talsins. Þrír hluthafar, Glitnir, NBI og Arion banki, fara með yfir 10% af atkvæðamagni hlutabréfa.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira