Laun hækkuðu um 1,6% frá fyrri ársfjórðungi 8. mars 2010 09:04
Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 1,6% hærri á fjórða ársfjórðungi 2009 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 1,9% að meðaltali en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 0,8%. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að frá fyrra ári hækkuðu laun um 3,2%, þar af um 3,4% á almennum vinnumarkaði og um 3,0% hjá opinberum starfsmönnum. Frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks mest eða um 2,7% en laun sérfræðinga hækkuðu minnst eða um 1,1%. Frá fyrra ári hækkuðu laun á bilinu -0,2% til 5,7%, mest hækkuðu laun verkamanna en minnst stjórnenda. Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun launa í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu 2,6%. Á sama tímabili hækkuðu laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum um 0,6%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun mest í iðnaði um 5,0 % en laun í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð lækkuðu um 0,9% á sama tímabili. Í júlí síðastliðnum voru undirritaðar breytingar og framlenging kjarasamninga flestra aðildarfélaga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og Alþýðusambands Íslands annars vegar og ríkis og sveitarfélaga hins vegar. Samkvæmt samningunum var gert ráð fyrir hækkun launataxta í þremur áföngum, þann 1. júlí 2009, 1. nóvember 2009 og 1. júní 2010. Samkvæmt samningunum hækkuðu lægstu launaflokkar um 6.750 krónur þann 1. júlí og 1. nóvember 2009.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira