Viðskipti innlent

Greining: Spá um að verðbólgan lækki í 8,3%

Ennfremur segir í Morgunkorninu að haldi gengi krónu sjó og sæmileg sátt náist um að halda launaþróun í horfinu næsta kastið er vandséð að mikill verðbólguþrýstingur muni verða til staðar hérlendis næstu misserin.

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,3% í apríl. Ef sú verður raunin mun verðbólga lækka úr 8,5% í 8,3% og telur greiningin raunar líklegt að þar með sé hafið hjöðnunarskeið í verðbólguþróun sem standa muni næsta kastið.

„Síðustu leifar útsöluloka munu væntanlega hafa hvað mest áhrif til hækkunar vísitölunnar nú, enda stilla margar verslanir þessa dagana út sumarvarningi á verði sem að fullu endurspeglar lágt gengi krónu. Samtals teljum við að þessi áhrif vegi til hækkunar VNV um tæpan fjórðung úr prósentustigi," segir í Morgunkorni greiningarinnar.

„Af þessum áhrifum frátöldum eru fáar vísbendingar um verulega hækkun á flestum undirliðum vísitölunnar þennan mánuðinn. Áhrif af hægfara styrkingu krónu undanfarið hálft ár virðast þegar vera farin að koma fram í sumum þeirra liða sem næmastir eru fyrir gengisbreytingum, t.a.m. innfluttum matvörum. Þá gerum við ráð fyrir lítilsháttar lækkun á húsnæðislið vísitölunnar. Lítill hækkunarþrýstingur virðist einnig vera til staðar í innlendum vöru- og þjónustuliðum, enda mikill slaki á vinnumarkaði og hart barist um aðhaldssama viðskiptavini."

Ennfremur segir í Morgunkorninu að haldi gengi krónu sjó og sæmileg sátt náist um að halda launaþróun í horfinu næsta kastið er vandséð að mikill verðbólguþrýstingur muni verða til staðar hérlendis næstu misserin.

„Innflutt verðbólga er mjög lítil þessa dagana og lítið lát virðist vera á hinni hægfara styrkingu krónunnar. Þá teljum við enn nokkuð í að húsnæðisverð taki að hækka að nýju, og vart þarf að fjölyrða um atvinnuástand hérlendis sem gerir að verkum að launaskrið er afar lítið nú um stundir," segir í Morgunkorninu

„Loks er ýmis annar kostnaður fyrirtækjanna heldur að lækka, og má þar nefna leiguverð og skammtímafjármögnun í krónum.

Miðað við ofangreindar forsendur spáum við því að verðbólga hjaðni jafnt og þétt það sem eftir lifir árs og verði innan við 4% í árslok. Hins vegar gæti komið kippur í verðbólguna um næstu áramót vegna hækkunar óbeinna skatta, þótt slík hækkun verði væntanlega umfangsminni en raunin var um síðustu áramót. Á næsta ári spáum við svo verðbólgu í grennd við verðbólgumarkmið Seðlabankans."

Fleiri fréttir

Sjá meira

×