Greining: Spá um að verðbólgan lækki í 8,3% 19. apríl 2010 10:10 Ennfremur segir í Morgunkorninu að haldi gengi krónu sjó og sæmileg sátt náist um að halda launaþróun í horfinu næsta kastið er vandséð að mikill verðbólguþrýstingur muni verða til staðar hérlendis næstu misserin.
Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,3% í apríl. Ef sú verður raunin mun verðbólga lækka úr 8,5% í 8,3% og telur greiningin raunar líklegt að þar með sé hafið hjöðnunarskeið í verðbólguþróun sem standa muni næsta kastið. „Síðustu leifar útsöluloka munu væntanlega hafa hvað mest áhrif til hækkunar vísitölunnar nú, enda stilla margar verslanir þessa dagana út sumarvarningi á verði sem að fullu endurspeglar lágt gengi krónu. Samtals teljum við að þessi áhrif vegi til hækkunar VNV um tæpan fjórðung úr prósentustigi," segir í Morgunkorni greiningarinnar. „Af þessum áhrifum frátöldum eru fáar vísbendingar um verulega hækkun á flestum undirliðum vísitölunnar þennan mánuðinn. Áhrif af hægfara styrkingu krónu undanfarið hálft ár virðast þegar vera farin að koma fram í sumum þeirra liða sem næmastir eru fyrir gengisbreytingum, t.a.m. innfluttum matvörum. Þá gerum við ráð fyrir lítilsháttar lækkun á húsnæðislið vísitölunnar. Lítill hækkunarþrýstingur virðist einnig vera til staðar í innlendum vöru- og þjónustuliðum, enda mikill slaki á vinnumarkaði og hart barist um aðhaldssama viðskiptavini." Ennfremur segir í Morgunkorninu að haldi gengi krónu sjó og sæmileg sátt náist um að halda launaþróun í horfinu næsta kastið er vandséð að mikill verðbólguþrýstingur muni verða til staðar hérlendis næstu misserin. „Innflutt verðbólga er mjög lítil þessa dagana og lítið lát virðist vera á hinni hægfara styrkingu krónunnar. Þá teljum við enn nokkuð í að húsnæðisverð taki að hækka að nýju, og vart þarf að fjölyrða um atvinnuástand hérlendis sem gerir að verkum að launaskrið er afar lítið nú um stundir," segir í Morgunkorninu „Loks er ýmis annar kostnaður fyrirtækjanna heldur að lækka, og má þar nefna leiguverð og skammtímafjármögnun í krónum. Miðað við ofangreindar forsendur spáum við því að verðbólga hjaðni jafnt og þétt það sem eftir lifir árs og verði innan við 4% í árslok. Hins vegar gæti komið kippur í verðbólguna um næstu áramót vegna hækkunar óbeinna skatta, þótt slík hækkun verði væntanlega umfangsminni en raunin var um síðustu áramót. Á næsta ári spáum við svo verðbólgu í grennd við verðbólgumarkmið Seðlabankans."
Mest lesið Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira