Viðskipti innlent

Greining reiknar með óbreyttum vöxtum Seðlabankans

Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar SÍ verður kynnt á miðvikudaginn og reiknar greining Íslandsbanka með því að nefndin ákveði að halda vöxtum bankans óbreyttum að þessu sinni.

Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að í yfirlýsingu peningastefnunefndarinnar vegna síðustu vaxtaákvörðunar kom fram að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og verðbólga hjaðni í samræmi við spár, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. Við síðustu vaxtaákvörðun stóð evran í tæplega 183 krónum en er nú um 180 krónur. Verðbólgan var þá 8,6% og fór niður í 7,5% í desember sem var í samræmi við spár.

„Ef spá okkar um 0,9% hækkun vísitölu neysluverðs í janúar gengur eftir mun verðbólgan hækka í 7,9% sem er þó engu að síður minni verðbólga en var við síðustu vaxtaákvörðun. Virðast þar af leiðandi þau tvö skilyrði sem nefndin setur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds hafi skapast frá síðustu vaxtaákvörðun nefndarinnar," segir í Morgunkorninu.

„En að fleiru er að hyggja. Ákvörðun forsetans um að vísa Icesave-lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu hefur skapað verulega óvissu um framvindu efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS sem og lánin frá Norðurlöndunum. Í kjölfarið hefur áhættuálag á íslenska fjáreignir hækkað verulega og lánshæfismat ríkissjóðs versnað."

Greiningin segir ennfremur að áætlað var að annarri endurskoðun áætlunarinnar yrði lokið fyrir janúarlok en teljast má líklegt að endurskoðunin muni frestast fram yfir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave þann 6. mars.

„Teljum við að sú mikla óvissa sem hefur skapast í kjölfar ákvörðun forsetans valdi því að bankinn ákveði að halda vöxtum bankans óbreyttum nú, þó svo að forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds finnist í þróun verðbólgu og gengi krónunnar. Við útilokum þó ekki smávægilega lækkun, sérstaklega í ljósi ummæla seðlabankastjóra Más Guðmundssonar sem lýsti því yfir fyrir stuttu að töfin á Icesave málinu þurfi ekki að koma í veg fyrir lækkun stýrivaxta nú á næsta vaxtaákvörðunarfundi peningastefnunefndarinnar," segir í Morgunkorninu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×