Yfir 10 milljarðar lagðir inn eftir slökun gjaldeyrishafta 4. febrúar 2010 11:28
Á þeim þremur mánuðum sem liðnir eru frá því að fyrsta skrefið í afnámi gjaldeyrishaftanna var stigið hafa tæplega 5 milljarðar kr. verðir lagðir hér inn á bankareikninga og tæplega 4,5 milljarðar kr. verið varið til að fjárfesta í atvinnurekstri. Rúmir 0,9 milljarðar kr. hafa farið í hlutabréfakaup og rúmir 0,2 milljarðar kr. í fasteignakaup. Samtals hafa því borist tæpir 10,6 milljarðar kr. í formi nýfjárfestinga á þessu tímabili.Fjallað er um málið í Morgnkorni greiningar íslandsbanka. Þar segir að þessir peningar séu enn í landinu. Kemur þetta fram í upplýsingum sem Seðlabanka Íslands sendi frá sér í gær. Þar kemur einnig fram að tæpir 9 milljarðar kr. komu inn í nóvember og desember en um 2 milljarðar kr. nú í janúar.Í lok október síðastliðins steig Seðlabanki Íslands fyrsta skrefið í afnámi gjaldeyrishafta með því að heimila innstreymi erlends gjaldeyris til nýfjárfestinga og útstreymi gjaldeyris sem kann að leiða af því í framtíðinni.Fengu þá fjárfestar heimild án takmarkana til þess að skipta aftur í erlendan gjaldeyri söluandvirði eigna sem þeir fjárfesta í, ásamt fjármagnstekjum af þeim.Í Morgunkorninu segir að nú sé óvíst hvort þetta fjármagn hefði skilað sér inn krónuna þó svo að ekki hafi verið stigið ofangreint skref í afnámi gjaldeyrishafta. Fjárfestingarnar sýna samt trú á innlent efnahagslíf og eru kærkomin viðbót í afar takmarkað flæði á gjaldeyrismarkaði. Til samanburðar má nefna að afgangur af vöruskiptum við útlönd var 9,1 milljarða kr. samanlagt í nóvember og desember á síðasta ári.Frá upptöku gjaldeyrishaftanna á árinu 2008 hefur vöru- og þjónustujöfnuðurinn verið jákvæður um 26 milljarða kr. að meðaltali á ársfjórðungi en það markar stóran hluta af nettóflæði á gjaldeyrismarkaði innan núverandi gjaldeyrishafta. Ofangreindir 10,6 milljarða kr. er því kærkomin viðbót og umtalsverð í þessum samanburði. Þess má einnig geta að samanlögð velta á millibankamarkaði með gjaldeyri hefur verið 9,7 miljarða kr. á þessum þrem mánuðum síðan í byrjun nóvember í fyrra.Fyrir utan inngrip í gjaldeyrismarkaðinn í upphafi nóvember í fyrra hefur Seðlabankinn ekkert gripið inn í markaðinn síðustu þrjá mánuði. Á þeim tíma hefur gengi krónunnar hins vegar styrkst um 2,4% gagnvart helstu gjaldmiðlum að meðaltali.Evran hefur farið úr 185 krónum í 177 krónur og dollarinn úr 124 krónum í 126 krónur, en evran hefur verið að gefa nokkuð eftir gagnvart dollaranum á þessu tímabili og sérstaklega núna í janúar. Styrking krónunnar á þessu tímabili á eflaust að hluta rætur sínar að rekja til ofangreindra10,6 milljarða kr. Þetta fyrsta skref í afnámi hafta verður því að telja jákvætt.Geta verður þess að samhliða þessu fyrsta skrefi við afnám hafta í byrjun nóvember í fyrra voru gjaldeyrisreglurnar einnig endurbættar með það að leiðarljósi að loka glufum sem notaðar höfðu verið til að fara í kringum höftin. Urðu þessar breytingar m.a. til þess að aflandsmarkaður með krónur lagðist nánast af. Eflaust hafa þessar breytingar á stóran þátt í þeirri styrkingu krónunnar sem átt hefur sér stað á tímabilinu.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira