Lögregla rannsakar á ný sölu SPRON-bréfa Þorbjörn Þórðarson skrifar 4. febrúar 2010 13:45 Stjórnarmenn og starfsmenn SPRON seldu bréf þegar verðið var í hámarki sumarið 2007. Almenningur vissi ekkert hverjir væru að selja.
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur nú fjögur mál til rannsóknar tengd sölu stjórnarmanna og tengdra aðila á stofnfjárbréfum í SPRON sumarið 2007 vegna gruns um innherjaviðskipti, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Meðal annars er um að ræða mál Gunnars Þórs Gíslasonar, fyrrverandi stjórnarmanns í SPRON, en hann seldi bréf fyrir á annan milljarð króna. Efnahagsbrotadeild RLS hafði áður hætt við rannsókn þar sem Fjármálaeftirlitið taldi á sínum tíma að viðskiptin hefðu ekki stangast á við lög. Viðskiptablaðið greinir í dag frá því að kaupendur bréfanna hafi falið lögmönnum sínum að kanna aðdragandann að sölu bréfanna. Stjórn SPRON ákvað á fundi hinn 17. júlí 2007 að skrá sparisjóðinn á markað þá um haustið. Eftir fundinn var markaður með viðskipti með stofnfjárhluti í sparisjóðnum opinn í rúman mánuð og á þessum tíma voru seld stofnjárbréf í SPRON fyrir á fimmta milljarð króna sem var margfaldað raunvirði bréfanna. Í raun myndaðist verðbóla með stofnfjárbréfin sem sprakk svo síðar um haustið þegar SPRON var skráð á markað. Þessi viðskipti hafa síðan dregið dilk á eftir sér því kaupendur bréfanna sitja eftir með sárt ennið. Verðlaus bréf og skuldir vegna kaupanna, en í mörgum tilvikum lánaði sparisjóðurinn sjálfur fyrir kaupunum. Eiginkona sparisjóðsstjórans seldi bréf Meðal seljenda stofnfjárbréfa voru þrír stjórnarmenn í SPRON, eiginkona sparisjóðsstjórans, Guðmundar Haukssonar, dóttir stjórnarmanns í SPRON og starfsmenn SPRON, en kaupendur vissu ekki á þessum tíma hverjir seljendurnir væru. Kaupendur bréfanna greiddu yfirverð fyrir þau en stofnfjárbréfin lækkuðu hratt í verði eftir skráningu sparisjóðsins á markað hinn 23. október 2007. Á tímabilinu 23. ágúst til 23. október var markaður með stofnfjárbréf lokaður. Viðskiptablaðið greinir frá því í dag að það hafi ekki aðeins verið stjórnarmenn í SPRON sem hafi selt stofnfjárbréf því Össur Skarphéðinsson, núverandi utanríkisráðherra og þáverandi iðnaðarráðherra seldi öll stofnfjárbréfin sín, 10 milljónir hluta að nafnvirði. Össur Skarphéðinsson sagðist í samtali við fréttastofu hafa selt bréf í SPRON fyrir 62 milljónir árið 2007. Hann hafi hagnast um 30 milljónir króna á sölunni. Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, var einnig meðal seljenda en hann seldi bréf fyrir tæplega 1,3 milljónir að nafnvirði og hefur fengið 5,2 til 9 milljónir króna fyrir bréfin miðað við markaðsvirði þeirra á þeim tíma. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er sala stjórnmálamanna á stofnfjárbréfum ekki til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild.
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira