Baugsfeðgar missa Haga 4. febrúar 2010 16:12 Bónus er meðal annars í eigu Haga.
Stjórn Arion banka hefur ákveðið að óska eftir skráningu verslunarfyrirtækisins Haga í Kauphöllina í samvinnu við Haga og selja hlut bankans í félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Þar segir ennfremur: Almenningi og fagfjárfestum mun standa til boða að kaupa hluti í félaginu. Núverandi stjórnendum Haga býðst að kaupa 15% hlut og þar af Jóhannesi Jónssyni, starfandi stjórnarformanni Haga, allt að 10% hlut á sama gengi og öðrum fjárfestum. Þessi leið þjónar hagsmunum bankans, viðskiptavina og starfsfólks Haga. Með skráningu félagsins fer það í gagnsætt og opið söluferli þar sem dreift eignarhald verður tryggt og félagið mun lúta lögboðnum kröfum um upplýsingagjöf. Ítarleg útboðs- og skráningarlýsing, sem Kauphöllin þarf að samþykkja, ásamt áreiðanleikakönnun óháðs aðila eiga að tryggja jafnræði meðal fjárfesta. Erlendir aðilar verða fengnir til ráðgjafar um útboðsferlið. Arion banki eignaðist hlut í Högum við yfirtöku á eignarhaldsfélaginu 1998 sem átti um 95,7% í félaginu. Markmið bankans við skuldaúrlausn félagsins var og er að hámarka endurheimtur í lánasafni og tryggja rekstur Haga til framtíðar. Því taldi bankinn mikilvægt að vanda undirbúning málsins og taka sér nauðsynlegan tíma til að gaumgæfa alla kosti í stöðunni. Hagar er vel rekið félag sem starfrækir margar þekktar verslanir. Félagið hefur á að skipa færu starfsfólki með mikla reynslu. Ákvörðun Arion banka er tekin í sátt og samvinnu við núverandi stjórnendur félagsins og eru þeir hlynntir skráningu þess í Kauphöllina. Ný fimm manna stjórn verður skipuð í Högum, sem samanstendur af Guðbrandi Sigurðssyni, Ernu Gísladóttur, Steini Loga Björnssyni, Svönu Helen Björnsdóttur og Jóhannesi Jónssyni, stofnanda Bónuss, sem verður áfram starfandi stjórnarformaður Haga. Undirbúningur Arion banka að kauphallarskráningu og sölu Haga hefst nú þegar. Gangi allt samkvæmt áætlun má gera ráð fyrir að ferlinu ljúki fljótlega upp úr miðju ári. Kauphallarskráning og útboð verða kynnt ítarlega þegar samþykki Kauphallarinnar liggur fyrir. Stjórn bankans telur að skráning Haga hleypi nýju lífi í hlutabréfamarkaðinn hér á landi. „Ég er ánægður með þessa lausn," sagði Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri í tilkynningunni þegar ákvörðun stjórnar Haga var kynnt. „Hagar er öflugt félag sem gegnir mikilvægu hlutverki í smásöluverslun um allt land. Bankinn hefur vandað til verka við úrlausn þessa máls og unnið í samræmi við verklagsreglur sínar. Þótt á móti hafi blásið á köflum í opinberri umræðu um þetta mál, tel ég að þessi lausn sanni gildi verklagsreglnanna og vinnubragða bankans."
Mest lesið Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira