Leitað að gögnum um lánveitingar til Skúla og Stanford 12. febrúar 2010 19:07
Fjörutíu manns frá lögreglunni í Lúxemborg hafa aðstoðað embætti sérstaks saksóknara við húsleit í Banque Haveland, sem var áður dótturfélag Kaupþings, og á fleiri stöðum í Lúx. Aðgerðirnar tengjast rannsókn á meintri tugmilljarða markaðsmisnotkun Kaupþings og lánveitingum bankans til félaga í eigu Skúla Þorvaldssonar og Kevin Stanford á Tortóla. Aðgerðir sérstaks saksóknara í Lúxemborg hafa staðið yfir síðan á þriðjudagsmorgun og tóku fjörutíu lögreglumenn frá efnahagsbrotadeildinni í Lúx þátt - ásamt Ólafi Þór Haukssyni sjálfum og fjórum starfsmönnum embættis sérstaks saksóknara. Farið var inn í Banque Havilland sem áður var dótturfélag Kaupþings. Bankastjóri er Magnús Guðmundsson, sem einnig stýrði bankanum fyrir hrun. Nokkrir núverandi og fyrrverandi starfsmenn bankans hafa verið yfirheyrðir og standa yfirheyrslur enn. Aðgerðirnar tengjast rannsókn sérstaks saksóknara og bresku efnahagsbrotadeilarinnar á meintri tugmilljarða markaðsmisnotkun Kaupþings í aðdraganda bankahrunsins. Farið var í þessar viðamiklu aðgerðir samkvæmt heimildum fréttastofu meðal annars til að afla frekari gagna um háar lánveitingar Kaupþings til félaganna Holly Beach, í eigu Skúla Þorvaldssonar og Trenvis Ltd í eigu Kevin Stanford. Það félag fékk lán hjá Kaupþingi til að kaupa skuldatryggingar á bankann á þeim tíma sem skuldatryggingarálagið var bankanum óhagstætt. Þar leikur grunur á umboðssvikum og markaðsmisnotkun. Mun efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar hafa sérstakan áhuga á lánveitingum bankans til Kevin Stanford, sem er þekktur fjárfestir á Bretlandseyjum.
Mest lesið U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Viðskipti innlent Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Viðskipti innlent Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Viðskipti innlent Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Viðskipti innlent Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Eftirlitið veður í Veðurstofuna Viðskipti innlent Arnar og Aron Elí til Reita Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Sjá meira