Telur að botninn sé í sjónmáli á íbúðamarkaðinum 17. nóvember 2010 10:54
Líklegt er nú að hægfara viðsnúningur sé framundan á íbúðamarkaði og botninn í sjónmáli. Það sem styður þá þróun er meðal annars viðsnúningur í kaupmætti, hjöðnun verðbólgu, styrking á gengi krónunnar, lægri vextir og hin almenni viðsnúningur í hagkerfinu sem framundan er. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að taki hagkerfið við sér á næsta ári eins og spár gera ráð fyrir mun íbúðamarkaðurinn fylgja með. „Það sem hinsvegar helst gæti staðið í vegi fyrir áframhaldandi viðsnúningi á íbúðamarkaði er bakslag í efnahagsbatanum, viðvarandi óvissa varðandi skuldastöðu heimilanna, óhagstæð þróun á vinnumarkaði og viðvarandi fólksfækkun," segir í Morgunkorninu. Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði í októbermánuði um 0,9% samkvæmt mælingum Þjóðskrár Íslands. Íbúðir í sérbýli hækkuðu um 2,2% í verði í október frá fyrri mánuði. Íbúðir í fjölbýli hækkuðu heldur minna eða um 0,5%. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað eða haldist óbreytt frá fyrri mánuði, en undanfarna 3 mánuði hefur íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 1,2%. Undanfarna 12 mánuði hefur íbúðaverð lækkað um 2,3% að nafnverði og um 6,6% að raunvirði. Á sama tíma fyrir ári síðan nam lækkunin hins vegar 10% að nafnverði og 20% að raunverði. Af þessari þróun má sjá að verulega er nú að hægja á verðlækkunum á íbúðamarkaði þó enn sé of snemmt að útiloka að til frekari lækkunar komi. Miklar sveiflur hafa einkennt mælingar á íbúðaverði frá hruni enda er velta á markaði aðeins brot að því sem áður var og fæð samninga eykur hættuna á skekkju í mælingum.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Sjá meira