Icesave-drög: 0-50 milljarðar á ríkið Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. desember 2010 12:06 Bandaríski lögmaðurinn Lee Buchheit, formaður íslensku samninganefndarinnar, sést hér á fundi með formönnum flokkanna í febrúar á þessu ári. Mynd/GVA
Drög að meginatriðum nýs Icesave-samkomulags gera ráð fyrir að kostnaður sem lendi á ríkissjóði verði á bilinu 0-50 milljarðar króna. Drögin að helstu atriðum sem náðst hefur samkomulag um, eins og vaxtaprósentu, voru kynnt í stjórn Viðskiptaráðs Íslands og hafa verið kynnt forystumönnum Samtaka atvinnulífsins. Samninganefndir eru enn að störfum. Drög liggja fyrir um öll helstu atriði að nýju samkomualagi í Icesave-deilunni, eins og fréttastofa greindi frá um helgina. Samkvæmt þessum drögum verða meðaltalsvextir í samningunum 2,78 prósent, en vextirnir voru 5,55 prósent í samningum Svavars-nefndarinnar sem þjóðin felldi hinn 6. mars síðastliðinn. í nokkuð breyttri mynd, með 98 prósent greiddra atkvæða. Þótt drög að nýju samkomulagi liggi fyrir í meginatriðum eru samninganefndirnar enn að störfum og síðast um helgina voru haldnir fundir. Bandaríski lögmaðurinn Lee Buchheit veitir íslensku nefndinni forystu. Samninganefndirnar vinna þannig að fyrst eru kláruð atriði sem þær eru sammála um en samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru mjög fá atriði á listanum sem enn hefur ekki náðst samkomulag um milli nefndanna. Er þar um að ræða tæknilegar útfærslur og atriði sem lúta að ýmsum kostnaði. Eins og drögin hafa verið kynnt gerir nýtt samkomulag ráð fyrir að kostnaður sem lendir á ríkissjóði verði á bilinu 0-50 milljarðar króna. Munar þar mestu um umtalsvert lægri vexti í drögum að nýjum samningum, styrkingu krónunnar og væntingar um betri endurheimtur í þrotabú Landsbankans. Kynnt fyrir stjórn Viðskiptaráðs Fyrir tveimur vikum síðan voru helstu meginatriði þess sem náðst hefur sátt um, þar á meðal vaxtaprósentan, kynnt fyrir stjórn Viðskiptaráðs Íslands og var það ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu sem annaðist kynninguna. Þá hafa drögin verði kynnt forystumönnum Samtaka atvinnulífsins. Þær upplýsingar fengust hjá upplýsingafulltrúa fjármálaráðuneytisins í morgun að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, væri ekki tilbúinn að tjá sig um drögin að öðru leyti en því að góður gangur væri í viðræðum við Breta og Hollendinga og að vonir stæðu til að samkomulag yrði kynnt fljótlega. Frestur Íslands til að svara áliti Eftirlitsstofnunar EFTA, vegna þess álits stofnunarinnar að íslenska ríkið beri ábyrgð á lágmarkstryggingu breskra og hollenskra sparifjáreigenda á Icesave-reikningum Landsbankans, rennur út á morgun. Svar til stofnunarinnar er tilbúið í öllum meginatriðum.
Tengdar fréttir Drög að Icesave samkomulagi kynnt Drög að nýju Icesave samkomulagi hafa verið kynnt þingflokkum stjórnarandstöðunnar. Samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands stefna að því að ljúka við gerð samnings sem allra fyrst. 5. desember 2010 12:01 Mikilvægt að Icesave samningar takist fljótlega Forstjóri Eftirlitsstofnunar EFTA segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki óskað eftir frekari frestun á að skila svari sínu vegna Icesave. Hann segir mikilvægt að samningar takist við Breta og Hollendinga fljótlega. Ef stjórnvöld nái hins vegar að sannfæra stofnunina um að mat hennar á greiðsluskyldu ríkisins sé rangt verði málið látið niður falla. 5. desember 2010 18:31 Icesave-frétt vekur athygli Frétt Stöðvar 2 um að Icesave samningur væri hugsanlega í sjónmáli, og að drög að honum hefðu verið kynnt stjórnarandstöðunni, hefur vakið athygli víða um heiminn. 6. desember 2010 07:59 Mest lesið „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira
Drög að Icesave samkomulagi kynnt Drög að nýju Icesave samkomulagi hafa verið kynnt þingflokkum stjórnarandstöðunnar. Samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands stefna að því að ljúka við gerð samnings sem allra fyrst. 5. desember 2010 12:01
Mikilvægt að Icesave samningar takist fljótlega Forstjóri Eftirlitsstofnunar EFTA segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki óskað eftir frekari frestun á að skila svari sínu vegna Icesave. Hann segir mikilvægt að samningar takist við Breta og Hollendinga fljótlega. Ef stjórnvöld nái hins vegar að sannfæra stofnunina um að mat hennar á greiðsluskyldu ríkisins sé rangt verði málið látið niður falla. 5. desember 2010 18:31
Icesave-frétt vekur athygli Frétt Stöðvar 2 um að Icesave samningur væri hugsanlega í sjónmáli, og að drög að honum hefðu verið kynnt stjórnarandstöðunni, hefur vakið athygli víða um heiminn. 6. desember 2010 07:59