HS Orka hagnaðist um 6,8 milljarða í fyrra 8. febrúar 2010 09:23
Hagnaður HS Orku á síðasta ári nam 6,8 milljörðum kr. samanborið við tap að upphæð 11,7 milljörðum kr. á árinu 2008. Þegar tekið hefur verið tillit til tekna og gjalda færðra á eigið fé er afkoman í heild jákvæð um um 8,15 milljarða kr. samanborið við tap að upphæð 4,7 milljarða kr. árið áður.Í tilkyningu segir að betri heildarafkoma stafar í meginatriðum af hækkun á álafleiðum (framtíðarvirði álsölusamninga) og lækkun gengistaps frá árinu 2008. Ársreikningur HS Orku hf var samþykktur af stjórn félagsins á stjórnarfundi félagsins sem haldinn var um helgina.Samkvæmt ársreikningnum námu heildartekjur HS Orku hf á árinu tæpum 6,3 milljörðum kr. samanborið við 5,4 milljarða kr. árið áður. Þessa tekjuaukningu má í meginatriðum rekja til þjónustutekna frá HS Veitum hf sem byggja á verksamningi milli fyrirtækjanna. Samsvarandi aukning er þá á kostnaðarhlið fyrirtækisins. Aðrar tekjur námu 784 milljónum og skapast af sölu lands og hitaréttinda."Þrátt fyrir að árið hafi verið erfitt fyrir íslenskt efnahagslíf þá hefur HS Orku hf tekist að ná mjög hagstæðri rekstrarafkomu á árinu og náð að bæta eiginfjárstöðu verulega eða úr 16,3% í 35,5%," segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf. "Meginástæðan er hækkun álverðs og stöðugra gengi íslensku krónunnar og miklvægt að sú þróun haldi áfram".Framleiðslu- og sölukostnaður nam 4,4 milljörðum kr. samanborið við 3,1 milljarð kr. árið áður. Aukning skapast vegna þjónustu við HS Veitur hf svo og aukningu kostnaðar við framleiðslu og sölu orkunnar. Önnur rekstrargjöld námu 499 milljónum kr. samanborið við 377 milljónir kr. á árinu 2008. Aukning annarra rekstrargjalda stafar aðallega af sérstakri afskrift þróunarkostnaðar að upphæð 142 milljónir kr.
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira