Greining Arion banka spáir 75-100 punkta vaxtalækkun 26. janúar 2010 14:35
Greining Arion banka spáir nokkuð myndarlegri stýrivaxtalækkun hjá peningastefnunefnd Seðlabankans á morgun eða 75 til 100 punktum. Færu vextirnir því niður í 9% til 9,25% samkvæmt spánni.Fjallað er um málið í Markaðspunktum greiningarinnar. Þar segir að nú virðast fylgismenn hárra vaxta eiga undir högg að sækja þar sem fá rök eru til að bakka upp enga eða hóflega vaxtalækkun. Ber þar helst að nefna að gengi krónunnar hefur verið afar stöðugt frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi og verðbólga hefur lækkað langt umfram spár Seðlabankans frá því í Peningamálum í nóvember.„Hugsanlega væri hægt að tína fram rök er tengjast IceSave eða hækkandi skuldatryggingarálagi en slíkt myndi stinga í stúf við fyrri ummæli seðlabankastjóra. Þótt afstaða Seðlabankastjóra hafi legið fyrir í síðustu viku, þegar hann lýsti því yfir í viðtali hjá Bloomberg fréttaveitunni að svigrúm væri til frekari vaxtalækkunar, þá hefur óvissan einkum legið í ákvörðun annarra nefndarmanna sem er skipuð af fimm mönnum þar sem meirihlutinn ræður," segir í Markaðspunktunum.„Nýjustu verðmælingar Hagstofunnar ýta undir þá trú okkar að meirihlutinn muni kjósa vaxtalækkun, spurning er því sú hversu mikla lækkun Seðlabankinn mun þora að leggja í. Miðað við síðustu vaxtaákvörðunarfundi þá hefur Seðlabankinn þó heldur verið á skjön við markaðsaðila, þ.e. til meiri lækkunar en talið hefur verið fyrirfram."Ennfremur segir greiningin að Seðlabankinn hefur að undanförnu gefið til kynna að þeir vilji hafa vexti í námunda við tólf mánaða verðbólgu og halda þannig jákvæðu raunvaxtarstigi, nú síðast í viðtalinu hjá Bloomberg gaf seðlabankstjóri í skyn að vaxtalækkun væri nauðsynleg til að koma í veg fyrir hækkun raunstýrivaxta.„Skattaleiðrétt verðbólga var í desember 6,9% á sama tíma og innlánsvextir voru 8,5%. Í dag er skattaleiðrétta verðbólgan hinsvegar komin í 5,2% - verði þetta viðmið Seðlabankans á morgun gæti hann lækkað vexti um 150 punkta.Hins vegar teljum við að sú óvissa sem nú er komin upp vegna synjunar á Icesave lögunum ásamt því sem endurskoðun á sameiginlegri áætlun stjórnvalda og AGS hafi verið frestað að nefndarmenn kjósi að lækka vextir hægar en ella. Við teljum því líklegra að vaxtalækkunin feli í sér 75-100 punkta lækkun að þessu sinni," segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira