Viðskipti innlent

Hafa áhuga á fasteignum bankanna

Innlendir og erlendir fjárfestar hafa áhuga á að kaupa fasteignir sem bankarnir tóku yfir í kringum hrunið og dótturfélög þeirra stýra. Á meðal þess sem er í skoðun er að fjármálafyrirtæki stofni sjóði sem kaupi eignirnar. Fjárfestarnir kaupi hlut í sjóðunum.

„Það er klárt að í heimi þar sem fjárfestingarkostir eru mjög takmarkaðir eru fasteignaverkefni áhugaverður möguleiki. Við erum með nokkur slík verkefni í gangi," segir Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital.

Dótturfélög bankanna, sem haldið hafa utan um fasteignir sem áður voru í eigu fasteignafélaga og fjárfesta, hafa stokkað þau upp og endurfjármagnað. Bæði er um atvinnuhúsnæði og íbúðir að ræða. Eftir því sem næst verður komist hafa félögin öll búið til eða eru með í mótun pakka með skyldum eignum sem hægt er að selja í einu lagi.

Helgi S. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Regins, dótturfélags Landsbankans, segir líklegt að fjárfestar muni í fyrstu kaupa atvinnuhúsnæði sem þegar hafi verið fjárhagslega endurskipulagt. Síðan komi íbúðir á markað. „Það eru teikn á lofti að íbúðafélög að skandinavískri fyrirmynd sem kaupa fasteignir og leigja þær áfram sé í mótun," segir hann.

Reginn bauð Smáralind til sölu á vordögum en hafnaði báðum tilboðum fyrir þremur vikum. Helgi segir söluferlið hafa kennt mönnum að markaðurinn sé ekki tilbúinn fyrir svo stórar eignir. Mikilvægt sé að útbúa eignasafn af hæfilegri stærð. Eignasafn sem Reginn mun setja í söluferli á næstunni er dæmigert fyrir þær fasteignir sem fjárfestar eru taldir hafa augastað á. Það er atvinnuhúsnæði í útleigu. Verðmæti nemur 1,5 milljörðum króna, sem þýðir að fjárfestar þurfi að eiga þrjú hundruð milljónir króna í eigin fé. - jab






Fleiri fréttir

Sjá meira


×