Hafa áhuga á fasteignum bankanna 14. október 2010 06:00
Innlendir og erlendir fjárfestar hafa áhuga á að kaupa fasteignir sem bankarnir tóku yfir í kringum hrunið og dótturfélög þeirra stýra. Á meðal þess sem er í skoðun er að fjármálafyrirtæki stofni sjóði sem kaupi eignirnar. Fjárfestarnir kaupi hlut í sjóðunum. „Það er klárt að í heimi þar sem fjárfestingarkostir eru mjög takmarkaðir eru fasteignaverkefni áhugaverður möguleiki. Við erum með nokkur slík verkefni í gangi," segir Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital. Dótturfélög bankanna, sem haldið hafa utan um fasteignir sem áður voru í eigu fasteignafélaga og fjárfesta, hafa stokkað þau upp og endurfjármagnað. Bæði er um atvinnuhúsnæði og íbúðir að ræða. Eftir því sem næst verður komist hafa félögin öll búið til eða eru með í mótun pakka með skyldum eignum sem hægt er að selja í einu lagi. Helgi S. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Regins, dótturfélags Landsbankans, segir líklegt að fjárfestar muni í fyrstu kaupa atvinnuhúsnæði sem þegar hafi verið fjárhagslega endurskipulagt. Síðan komi íbúðir á markað. „Það eru teikn á lofti að íbúðafélög að skandinavískri fyrirmynd sem kaupa fasteignir og leigja þær áfram sé í mótun," segir hann. Reginn bauð Smáralind til sölu á vordögum en hafnaði báðum tilboðum fyrir þremur vikum. Helgi segir söluferlið hafa kennt mönnum að markaðurinn sé ekki tilbúinn fyrir svo stórar eignir. Mikilvægt sé að útbúa eignasafn af hæfilegri stærð. Eignasafn sem Reginn mun setja í söluferli á næstunni er dæmigert fyrir þær fasteignir sem fjárfestar eru taldir hafa augastað á. Það er atvinnuhúsnæði í útleigu. Verðmæti nemur 1,5 milljörðum króna, sem þýðir að fjárfestar þurfi að eiga þrjú hundruð milljónir króna í eigin fé. - jab
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira