Leikhúsgestum fækkaði um 14% milli ára 23. mars 2010 09:12
Samanlagður fjöldi gesta á leiksýningar leikhúsa, atvinnuleikhópa og áhugaleikfélaga innanlands var tæplega 356 þúsund á síðasta leikári. Það samsvarar því að hver landsmaður hafi séð eina leiksýningu á leikárinu. Áhorfendum á síðasta leikári fækkaði um 56 þúsund frá því á leikárinu þar á undan. Það jafngildir fækkun gesta um 14 af hundraði. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að á síðasta leikári voru settar á fjalirnar 242 uppfærslur á vegum leikfélaga, leikhópa og leikfélaga, sem sýndar voru 2.240 sinnum. Á síðasta leikári voru starfrækt sex atvinnuleikhús með aðstöðu í fimm leikhúsum. Á vegum þeirra voru 12 leiksvið sem rúmuðu 2.853 gesti í sæti. Settar voru á svið 93 uppfærslur í leikhúsunum á eigin vegum eða í samstarfi við aðra. Uppfærslum fjölgaði um sjö frá fyrra leikári. Af tegund einstakra verka sem voru færð á fjalirnar voru leikrit flest, eða 49 talsins. Uppfærslur með verkum eftir íslenska höfunda voru 40, en eftir erlenda 36. Uppfærslur eftir innlenda og erlenda höfunda voru 17. Samanlagður fjöldi sýninga í leikhúsum á síðasta leikári var 1.158. Fjöldi leikhúsgesta stóð nánast í stað frá leikárinu á undan, eða hátt í 276 þúsund. Atvinnuleikhópar sem settu upp eina eða fleiri leiksýningu á síðasta leikári voru 46 talsins samanborið við 39 leikárið 2007/2008. Á síðasta leikári settu hóparnir á svið 82 uppfærslur innanlands, þar af voru 17 í samstarfi við leikhúsin. Leikrit og verk eftir innlenda höfunda eru uppistaðan í uppfærslum atvinnuleikhópa, eða um tvær af hverjum þremur uppfærslum. Atvinnuleikhópar sýndu innanlands 726 sinnum á leikárinu. Það er um 62% fækkun sýninga milli leikára. Heildaraðsókn að sýningum atvinnuleikhópa á síðasta leikári var 73.470. Sýningargestum atvinnuleikhópa fækkaði um 105 þúsund á síðasta leikári frá næsta leikári á undan og um 139 þúsund frá leikárinu 2006/2007 er gestir á sýningar atvinnuleikhópa voru flestir. Á næstliðnu leikári færðu 42 áhugaleikfélög á svið 89 leiksýningar víðs vegar um landið. Þrjár af hverjum fjórum uppfærslum voru leikverk eftir innlenda höfunda. Samanlagður fjöldi flytjenda á síðasta leikári var hátt í 2.000 manns. Félögin sýndu 602 sinnum fyrir ríflega 40 þúsund gesti. Gestum að sýningum áhugaleikfélaga fjölgaði umtalsvert milli leikára, eða um 35 af hundraði.
Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Sjá meira