Hugleiða að byggja hér lyfjaverksmiðju 18. febrúar 2010 00:01
Bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Alvogen leitar að stað fyrir nýja verksmiðju sem fyrirhugað er að reisa. Að sögn Róberts Wessman, starfandi stjórnarformanns Alvogen, stendur valið helst á milli Austur-Evrópu og Íslands. Tilkynnt var um kaup fjárfestingarsjóðs undir forystu Róberts Wessman á 30 prósenta hlut í Alvogen í júlílok í fyrra og jafnframt um þá stefnu að efla starfsemi fyrirtækisins enn frekar. Róbert segir reksturinn ganga vel og að félagið sé óðum að færa út kvíarnar, en auk starfsemi í Bandaríkjunum hafi verið opnaðar starfsstöðvar í Kína, Indlandi, Búlgaríu, Rúmeníu og Serbíu. Róbert segir félagið stefna í fremstu röð samheitalyfjafyrirtækja en vöxturinn verði þó yfirvegaður og varast verði mikla skuldsetningu. Hann segir innviði félagsins sterka og á því verði byggt. „Við stefnum á að hefja starfsemi í tíu löndum til viðbótar á þessu ári, auk þess sem við erum að skoða að bæta við verksmiðju hér á landi," segir Róbert, en hann kynnti annað verkefni til sögunnar í gær, heilbrigðisþjónustu sem starfrækt verður að Ásbrú í Reykjanesbæ. „Verksmiðjan gæti mögulega orðið á Íslandi eða í Austur-Evrópu. Þeir staðir koma helst til greina," segir hann og bætir við að ef Ísland yrði fyrir valinu þá væru sterkar líkur á því að verksmiðjunni yrði fundinn staður á Suðurnesjum. „Við höfum átt í mjög góðu samstarfi við Reykjanesbæ," segir hann og kveðst einnig vilja leggja lóð sitt á vogarskálarnar við frekari atvinnuuppbyggingu þar, enda sé atvinnuleysi í einstökum landshlutum einna mest þar. Samheitalyfjafyrirtækið Alvogen er með yfir 100 ára rekstrarsögu, en félagið sérhæfir sig í þróun og framleiðslu samheitalyfja sem eru flókin í þróun og framleiðslu. Róbert Wessman var áður forstjóri samheitalyfjafyrirtækisins Actavis, en lét þar af störfum í ágústbyrjun 2008. - óká
Mest lesið Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Viðskipti innlent Brynja til Fastus frá Samkaupum Viðskipti innlent „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Viðskipti innlent Feðgarnir nú aftur einu hluthafarnir í Eyri Invest Viðskipti innlent Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Atvinnulíf Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Atvinnulíf Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Samstarf Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Sjá meira