Arion hagnast um tæpa 8 milljarða 15. september 2010 18:12
Hagnaður Arion banka samkvæmt könnuðum árshlutareikningi fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2010 nam 7,9 milljörðum króna eftir skatta samkvæmt tilkynningu frá bankanum. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 17,7% á ársgrundvelli. Með yfirtöku Kaupskila á 87% hlut í Arion banka þann 8. janúar 2010 styrktist eiginfjárstaða bankans þar sem Kaupskil lagði bankanum til nýtt eigið fé ásamt því að ríkið veitti bankanum víkjandi lán upp á 29 ma.kr. Eiginfjárhlutfall bankans þann 30. júní 2010 var 16,4% sem er yfir 16% kröfu Fjármálaeftirlitsins. Jafnframt stenst Arion banki mjög rúmlega allar lausafjárkröfur eftirlitsaðila. Helstu atriði árshlutareikningsins: Hagnaður eftir skatta nam 7,9 ma.kr. á fyrri hluta ársins 2010. Rekstrartekjur námu alls 27,7 ma.kr. á tímabilinu. Hreinar vaxtatekjur námu 10,3 ma.kr. á fyrstu 6 mánuðum ársins. Hreinar þóknunartekjur námu 2,9 ma.kr. á tímabilinu. Gengishagnaður nam samtals 1,4 ma.kr. en gengishagnaður af gjaldmiðlum var 1,7 ma.kr. Vaxtamunur af meðalstöðu vaxtaberandi eigna og skulda var 2,9% á tímabilinu. Tekjuskattur á tímabilinu nam 1,5 ma.kr. Arðsemi eigin fjár var 17,7% á ársgrundvelli. Kostnaðarhlutfall bankans var 56,0% á tímabilinu. Útlán til viðskiptavina námu 466,0 ma.kr. þann 30. júní samanborið við 357,7 ma.kr. í árslok 2009. Aukningin er einkum tilkomin vegna nýrra útlána sem bankinn fékk í tengslum við eigendabreytingu 8. janúar síðastliðinn. Innlán námu 493,4 ma.kr. samanborið við 495,5 ma.kr. í árslok 2009. Í lok tímabilsins voru 1.142 stöðugildi hjá bankanum samanborið við 1.157 í árslok 2009. Heildareignir námu 842,3 ma.kr. þann 30. júní 2010 samanborið við 757,3 ma.kr. í lok árs 2009. Helstu breytingar á eignum bankans má rekja til yfirtöku Kaupskila á 87% hlut í Arion banka þann 8. janúar en þá jukust heildareignir bankans um 80,2 ma.kr. í 837,6 ma.kr. Lánabók bankans óx um 112,8 ma.kr. en skuldabréfaeign lækkaði um 32,6 ma.kr. þar sem ríkið fékk 87% af hlut sínum endurgreiddan til baka. Eigið fé bankans í lok júní 2010 var 101,4 ma.kr. en nam 89,9 ma.kr. í árslok 2009. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka: „Uppgjörið fyrir fyrstu sex mánuði ársins er í takt við væntingar og sýnir vaxandi fjárhagslegan styrk bankans. En hið efnahagslega umhverfi er og verður krefjandi og þá ekki síst vegna þeirrar óvissu sem ríkir vegna erlendra lána. Bankinn hefur farið ítarlega yfir hugsanleg áhrif þeirra á efnahag bankans og mun bankinn í öllum tilfellum uppfylla kröfu laganna um 8% eiginfjárhlutfall fjármálastofnanna."
Mest lesið „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira