Gistinætur á hótelum á svipuðu róli og í fyrra 5. mars 2010 12:26
Gistinætur á hótelum í janúar síðastliðnum voru aðeins færri en í sama mánuði 2009, eða sem nemur 0,3%. Alls voru gistinætur ríflega 54,6 þúsund nú í janúar en höfðu verið tæp 54,8 þúsund á sama tíma 2009.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka en Hagstofan birti í morgun tölur um gistinætur á hótelum.Í Morgunkorninu segir að þessa fækkun má einkum rekja til þess að gistinóttum erlendra ríkisborgara fækkaði um 1,0% á tímabilinu þar sem gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 2,3%. Er þetta annar mánuðurinn í röð sem aukning hefur orðið á gistinóttum Íslendinga en eins og kunnugt er hefur landinn sparað verulega við sig hótelgistingar undanfarin misseri.Þessi 1% samdráttur á gistinóttum erlendra ríkisborgara kemur ekki á óvart enda voru erlendir ferðamenn 6% færri nú í janúar samanborið við sama mánuð í fyrra. Það var Hagstofan sem birti tölur um gistinætur og gestakomur á hótelum í janúar 2010 nú í morgun.Samkvæmt Ferðamálastofu var árið 2009 stærsta ferðamannaár á Íslandi frá upphafi sem er afar áhugavert í ljósi þess að flest önnur lönd voru að upplifa samdrátt í greininni á sama tíma. Í heild fækkaði gistinóttum árið 2009 um 0,6% frá 2008 og má einkum rekja það til þess að gistinóttum Íslendinga fækkaði um 10% milli ára. Gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgaði á sama tíma um 2%, en þróun í þá átt var afar sjaldgæf meðal ríkja Evrópu og horfðu flest ríki fram á verulegan samdrátt hvað þetta varðar.Þannig voru gistinætur á hótelum um 5,1% færri að meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins samkvæmt hagstofu sambandsins og þar af nam samdráttur á gistinóttum erlendra ríkisborgara 9,1%. Mest var fækkunin í Lettlandi (23,3%) og þar á eftir í Litháen (20,4%). Þróunin var svipuð í Svíþjóð og hér á landi en þar fjölgaði gistinóttum um 0,1% milli ára og má það einkum rekja til þess að gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgaði um 3,3%.
Mest lesið Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Viðskipti innlent Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Sjá meira