Viðskipti innlent

Samið um framkvæmdir við Skarfagarð

Faxaflóahafnir hafa gert verksamning við SS hellulagnir vegna umhverfisfrágangs við Skarfagarð í Sundahöfn.

Verkið felst m.a. í að steypa tröppur í grjótgarðinum við Skarfaklett sem ná niður í sandfjöruna.

Sagt er frá málinu á vefsíðu Faxaflóahafna. Þar segir að einnig verða steyptar undirstöður undir vita á enda Skarfagarðs, lagður malbikaður og upplýstur göngustígur út á garðinn ásamt öðrum frágangi á svæðinu.

Áætlað er að ljúka verkinu í desember.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×