Faxaflóahafnir samþykkja viðræður um hótelbyggingu 16. apríl 2010 09:38
Stjórn Faxaflóahafna hefur samþykkt að ganga til viðræðna við Hafnarhótel ehf. um byggingu á 120 herbergja hóteli við Ægisgarð. Samkvæmt hugmyndum forráðamanna Hafnarhótel er m.a. gert ráð fyrir fullkominni sundlaug í hótelinu sem yrði opin almenningi.Stjórn Faxaflóahafna hélt aukafund um málið í vikunni og þar var eftirfarandi bókað: „Lóðin við Ægisgarð er staðsett á áberandi og einstökum stað á hafnarsvæðinu. Mikilvægt er að sátt ríki um uppbygginguna, að sú bygging sem rísa mun á lóðinni sé í háum gæðaflokki, hún falli vel að umhverfi hafnarinnar og að starfsemin styðji við fjölbreytt mannlíf svæðisins.Stjórn Faxaflóahafna sf. veitir hafnarstjóra heimild til að ganga til viðræðna við fulltrúa Hafnarhótelsins ehf. um byggingarrétt og annað sem tengist fyrirhuguðum framkvæmdum og byggingu hótels á umræddri lóð.Fyrirvarar á slíkum viðræðum varða aðkomu stjórnar að samningum, að skipulagsyfirvöld, að höfðu samráði við borgarbúa og aðra hagsmunaaðila, samþykki breytt deiliskipulag sem tekur tillit til hótelrekstrar og byggingar af þeirri stærðargráðu sem sóst er eftir.Auk þess gerir stjórnin fyrirvara þess efnis að áreiðanleikakönnun verði lögð fram áður en gengið verði til samninga. Hafnarstjóri haldi stjórn upplýstri um framgang viðræðnanna og önnur atriði er málið varða og koma fram í minnisblaði um málefni sem fjalla þarf um."Á bakvið Hafnarhótel ehf. eru erlendir fjárfestar og ABZ sem stendur fyrir arkitektana Arkís, Guðjón Bjarnason og Carlos Zapata. Egill Guðmundsson arkitekt hjá Arkís hefur áður sagt í samtali við visir.is að hótel þetta gæti orðið mikil lyftistöng fyrir hafnarsvæðið og að framkvæmdin spili vel inn í aðrar framkvæmdir á svæðinu eins og t.d. tónlistarhúsið.
Mest lesið Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna Viðskipti innlent „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Viðskipti innlent „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Viðskipti innlent Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Viðskipti erlent Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Viðskipti innlent Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Viðskipti erlent Engar hópuppsagnir í apríl Viðskipti innlent Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Atvinnulíf Fleiri fréttir Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Sjá meira