Skilanefndin orðin einn stærsti kráareigandi Bretlands 11. febrúar 2010 18:00
Skilanefnd Kaupþings er orðin einn stærsti kráaeigandi í Bretlandi, en fyrirtækið eignaðist öldurhúsin vegna skulda bresk-íranska viðskiptajöfursins Robert Tchenguiz við Kaupþing. Skilanefndin hefur nú kyrrsett yfir 100 milljónir punda á reikningum Tchenguiz. Skilanefnd Kaupþings á nú rúmlega helmingshlut á móti þýska bankanum Commerzbank í breska kráarveldinu Bay Restaurant Group sem var í bresk-íranska kaupsýslumannsins Robert Tchenguiz. Undir fyrirtækinu eru keðjur eins og haha Bar og grill, La Tasca, sem eru fínni barir sem bjóða upp á ítalska rétti og Slug and Lettuce. Einn fulltrúi frá skilanefnd Kaupþings situr nú í stjórn Bay Restaurant Group. Talið er að keðjan sé rúmlega 40 milljarða króna virði. Kaupþing banki á kröfur upp á 1,37 milljarða evra, eða tæplega 250 milljarða króna á núvirði á félög í eigu Tchenguiz. Þess má geta að þessi fjárhæð, 250 milljarðar króna, er einn sjötti af landsframleiðslu Íslands á síðasta ári. Tchenguiz var stærsti einstaki lántakandi Kaupþings og nátendur stærstu eigendum hans, en hann sat í stjórn Exista.Skilanefnd Kaupþings hefur unnið að því í rúmlega ár að rekja slóð peninganna, en útlánin til Tchenguiz voru veitt til fyrirtækja sem saman mynda nokkuð flókið net fyrirtækja undir fyrirtækinu Oscatello Investments sem skráð er á Tortóla á Jómfrúreyjum, en það félag hefur verið tekið yfir af skilanefndinni. Öll þessi vinna hefur verið mjög tímafrek og hefur þurft að grípa til ráðstafana fyrir breskum dómstólum til að verja hagsmuni Kaupþings.Nú er svo komið að bankinn hefur þegar kyrrsett yfir 100 milljónir punda í reiðufé á innstæðum bankareikninga Tchenguiz, en það eru um 20 milljarðar króna eða undir tíu prósentum af útlánum til Tchenguiz. Ekki liggur fyrir í dag hversu mikið fæst upp í kröfurnar, en ljóst er að gífurlegir fjármunir hafa glatast vegna viðskipta Tchenguiz við bankann.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira