Skuldabréf Landsbankans hafa tvöfaldast í verði 11. febrúar 2010 10:28
Skuldabréf Landsbankans halda áfram að hækka og eru í dag skráð á 8% af nafnverði á viðskiptavefnum Keldan.is. Þau hafa því tvöfaldast í verði frá því að forseti Íslands ákvað að vísa Icesave málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu.Eins og fram kom í frétt hér á síðunni hækkuðu skuldabréf Landsbankans um tæp 40% í verði skömmu eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tilkynnti um ákvörðun sína í Icesave málinu í upphafi janúar.Verðið á skuldabréfum í föllnu íslensku bönkunum hefur verið skráð á vefsíðuna Keldan frá því að sú síða opnaði fyrir rúmlega þremur mánuðum. Verðið á skuldabréfum Landsbankans lá lengst í kringum 4% af nafnverði bréfanna fram að ákvörðun forsetans. Eftir ákvörðun forsetans hækkuðu bréfin strax upp í 5,5% af nafnverði eða um tæp 40%. Síðan hafa þau haldið áfram að hækka.Markaðurinn með þessi skuldabréf er óskilvirkur og ógagnsær en þeir sem kaupa Landsbankabréfin eru sennilega að veðja á að eitthvað fáist úr þrotabúi bankans umfram forgangskröfur. Verðið á bréfunum er lítt skiljanlegt í ljósi þess að margoft hefur komið fram að ekki fáist upp í forgangkröfurnar í búið.Einnig gæti verið um að ræða kaup áhættufjárfesta sem veðja á að neyðarlögin frá haustinu 2008 muni ekki halda og þar með riðlist röð forgangskrafna í þrotabú Landsbankans.
Mest lesið Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fleiri fréttir Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent