Peningastefnunefnd: Minnkandi aðhald í ríkisfjármálum 11. febrúar 2010 08:37 „
Einnig var lýst yfir áhyggjum af minna aðhaldi í ríkisfjármálum miðað við það sem áður var gert ráð fyrir og hugsanlegum áhrifum af sjálfbærni ríkisfjármála á gengi krónunnar og verðstöðugleika til lengri tíma litið." Þetta segir í fundargerð Peningastefnunefndar frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi hennar í janúar. Fram kemur einnig að nefndarmenn voru sammála um að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðni eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. Í fundargerðinni segir: „Nefndarmenn ræddu efnahagsþróunina og horfurnar eins og þær voru kynntar í spánni sem birtist í Peningamálum 2010/1. Verðbólga hafði hjaðnað áfram í desember og janúar, ívið meira en spáð hafði verið í nóvember. Lækkun neysluverðsvísitölunnar um 0,3% í janúar var óvænt og þótt verðbólga verði minni á fyrsta ársfjórðungi en spáð var í nóvember, er þess vænst að hún verði meiri út árið 2011 vegna heldur lægra gengis krónunnar, hærri launakostnaðar á framleidda einingu og hærri verðbólguvæntinga. Nefndarmenn voru sammála um að það ylti að miklu leyti á gengisbreytingum á næstu mánuðum hversu hratt verðbólgan hjaðnaði. Sumir nefndarmenn héldu því fram að aðeins óveruleg hætta væri á annarrar umferðar áhrifum á verðbólgu svo lengi sem vinnumarkaðurinn héldist áfram veikur. Aðrir lýstu yfir áhyggjum af vaxandi arðsemi í útflutningsgreinum sem þeir töldu geta skapað launaþrýsting um leið og jafnvægi kemst á vinnumarkaðinn; þeir sáu þó fyrir sér að hægfara styrking krónunnar frá því lága gengi sem nú er gæti dregið úr þeim þrýstingi.Þótt samdráttur framleiðslu á síðasta ári hafi verið minni en spáð var í nóvember, einkum vegna tímabundinna áhrifa, yrði batinn veikari vegna frestunar fjárfestingar. Óvissa um efnahagshorfurnar hefði einnig aukist vegna meiri óvissu um framgang efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Nefndarmenn bentu á að ef óvissunni yrði ekki eytt á næstunni gætu áhrifin takmarkað aðgang að alþjóðlegum fjármálamörkuðum og dregið úr líkum á nýrri beinni erlendri fjárfestingu á næstu misserum.Þetta mundi leiða til minni fjárfestingar og meira atvinnuleysis en í grunnspánni og meiri samdrætti landsframleiðslu, þar sem öll ný fjárfestingarverkefni þyrfti þá að fjármagna með innlendum sparnaði sem aðeins væri hægt að útvega með því að draga enn frekar saman einkaneyslu og ríkisútgjöld. Þar sem óvissa ríkir einnig um fjármögnun áætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins mundi þetta einnig skapa þörf fyrir mikinn viðskiptaafgang næstu árin til að tryggja sjálfbærni greiðslujafnaðar.Nefndarmenn ræddu áhrifin af breyttum horfum frá síðasta fundi um vaxtaákvörðun. Með hækkuðu áhættuálagi hefði núverandi áhættuaðlöguð ávöxtun á innlendar eignir lækkað og hvatinn fyrir fjárfesta til að eiga eða kaupa eignir í íslenskum krónum minnkað, sem kallaði á hærri vexti. Á hinn bóginn kölluðu versnandi horfur fyrir þjóðarbúið og minni verðbólga á lægri vexti.Eins og áður voru nefndarmenn sammála um að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðni eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. Á hinn bóginn lögðu nefndarmenn áherslu á að meðan veruleg óvissa ríkir um aðgang Íslands að erlendum lánsfjármörkuðum í framtíðinni verði svigrúm peningastefnunefndarinnar til frekari lækkunar vaxta takmarkað.Ennfremur voru nefndarmenn sammála um að nefndin yrði reiðubúin að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga yrði nálægt markmiði til lengri tíma litið."
Mest lesið Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Viðskipti innlent Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Skordýraeitur á Pinkids eplum í öskju Neytendur Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Viðskipti innlent Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Sjá meira
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent
Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Viðskipti innlent