FME: Kaupskil mega eiga virkan eignarhlut í Arion banka 11. janúar 2010 15:41 Mynd/Pjetur
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt Kaupskilum ehf. leyfi til að fara með virkan eignarhlut í Arion banka hf. (Arion) fyrir hönd Kaupþings banka hf (Kaupþing). Leyfið er veitt í kjölfar samnings Kaupþings og íslenska fjármálaráðuneytisins, hinn 3. september síðastiðinn, þess efnis að Kaupþing gæti eignast 87% hlut í Arion að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.Þetta kemur fram á vefsíðu FME. Þar segir að afstaða Fjármálaeftirlitsins til þess hvort Kaupþing, sem er í greiðslustöðvun og slitameðferð, væri hæft til að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki var neikvæð.Fjármálaeftirlitið tók þó fram að vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem leiddu til samkomulagsins, og vegna þess að það felur í sér sátt á milli aðilanna um rekstur Arion sem ætla má að stuðli að stöðugleika á fjármálamarkaði, kæmi til álita að kanna hvort umsækjandi gæti gripið til ráðstafana sem dygðu til að takmarka óæskileg áhrif eignarhaldsins samanber lög um fjármálafyrirtæki.Niðurstaðan var sú að að veita leyfið með skilyrðum um afgerandi ráðstafanir er lúta að fjárhagslegum styrk umsækjanda, eignarhaldi bankans, eftirlitshagsmunum og stefnumiðum eigenda.Fjárhagslegur styrkur umsækjanda skal tryggður með aðgangi að ákveðinni lágmarksupphæð lausafjár sem myndar stofn sem nýta má til að auka hlutafé Arion til að bregðast við því ef bankinn mætir verulegu andstreymi í rekstri. Var fjárhæð þessi metin af Arion að undirlagi Fjármálaeftirlitsins á grundvelli samræmdrar aðferðafræði sem þróuð var innan ramma úttektar Fjármáleftirlitsins á nýju bönkunum í maí 2009.Eignarhald bankans skal vera í höndum sérstaks dótturfélags Kaupþings (Kaupskila), sem lýtur stjórn sem er að meirihluta skipuð stjórnarmönnum óháðum Kaupþingi, stórum kröfuhöfum og Arion sjálfum. Er skilanefnd Kaupþings gefinn kostur á að tilnefna einn fulltrúa sinn í þriggja manna stjórn Kaupskila, en hinir tveir, þ.m.t. stjórnarformaður, skulu vera óháðir. Útnefning allra stjórnarmanna eignarhaldsfélagsins er háð samþykki Fjármálaeftirlitsins og skulu þeir uppfylla kröfur þess, m.a. um þekkingu og reynslu af fjármálastarfsemi.Stjórn Kaupskila fer með atkvæðisrétt þann sem Kaupþing öðlast í Arion og útnefnir stjórnarmenn bankans. Kveða skilyrði Fjármálaeftirlitsins einnig á um það að af stjórnarmönnum bankans sjálfs skuli skilanefnd aðeins hafa einn fulltrúa, en aðrir skuli vera óháðir, þ.m.t. stjórnarformaður. Með því er átt við að þeir starfi hvorki í umboði einstakra eigenda eða kröfuhafa, né séu bundnir þeim eða bankanum sjálfum nokkrum hagsmunatengslum.Í sérstökum umboðssamningi milli Kaupskila og Kaupþings tekst Kaupþing á hendur að virða sjálfstæði stjórnar fyrrnefnda félagsins og skyldur hennar til að stuðla að heilbrigðum og traustum rekstri Arion án utanaðkomandi íhlutunar. Er stjórn Kaupskila gert skylt að gefa skýrslu um framkvæmd þessarar stefnu til Fjármálaeftirlitsins ársfjórðungslega.Til að greiða fyrir eftirliti er Kaupskilum gert að færa eignarhald á öllum dótturfélögum sem hafa með höndum fjármála- og vátryggingarstarfsemi í eitt móðurfélag ef þess gerist þörf að mati Fjármálaeftirlitsins.Stefnumiðum eigenda eru settar skorður með því að áskilja tilteknar kvaðir á viðskipti við tengda aðila, arðgreiðslur út úr Arion og sölu hluta í Arion næstu þrjú ár. Kaupþingi ber þannig að tilkynna fyrirfram um fyrirhuguð eigendaskipti hluta í Arion banka eða Kaupskilum til Fjármálaeftirlitsins. Þegar slík tilkynning berst mun fara fram endurnýjað hæfismat á væntanlegum eigendum af hálfu Fjármálaeftirlitsins, svo fremi eignarhaldið feli í sér áhrif á stjórn bankans.Áður hafði Fjármálaeftirlitið kynnt fyrir nýju bönkunum þremur eftirlitskröfur sínar. Þær byggjast á gagngerri úttekt á rekstrarhæfni þeirra miðað við eignasamsetningu, fjármögnun og líklegar efnahagshorfur, sem gerð var í maí sl.Fela kröfurnar m.a. í sér 16% eiginfjárlágmark í stað 8% áður, viðbúnað til að standast nýtt álagspróf sem miðast við óhagstæða efnahagsþróun um lengri tíma en almennt er vænst og strangari kröfur til lausafjárstyrks en verið hefur. Auk þess er það gert að skilyrði fyrir starfsleyfi nýju bankanna að þeir hrindi í framkvæmd ítarlegri áætlun um endurbætur á áhættustýringu og stjórnarháttum.
Mest lesið Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Viðskipti erlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Viðskipti innlent Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Sjá meira