Fræ ársins veitt í fyrsta sinn 27. janúar 2010 15:07
Hugmyndir Ingólfs Harðarsonar, flugvirkja og rafeindavirkja, og Jóhannesar Loftssonar, efnaverkfræðings og byggingaverkfræðings, eru Fræ ársins 2010. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík og formaður dómnefndar, tilkynnti um verðlaunin við hátíðlega athöfn í HR í dag og Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Auði Capital, afhenti verðlaunin. Í tilkynningu segir að Fræið sé frumkvöðlasamkeppni á vegum Háskólans í Reykjavík í samstarf við Klak - nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, Hugmyndahús háskólanna og Auði Capital. Markmið keppninnar er að styðja við frumstig nýsköpunar og gefa þar með frumkvöðlum tækifæri til að breyta hugmynd eða frumgerð í viðskiptaáætlun og sprotafyrirtæki. Verðlaunahafar fá samtals eina milljón króna, vinnuaðstöðu og niðurfelld skólagjöld í Viðskiptasmiðju Klaksins. Ingólfur hefur þróað nýja tegund af undirvagni fyrir rafmagnsfarartæki sem gerir þeim kleift að keyra beint til hliðar. Nýjungin felst í fimmta hjólinu undir miðjum bílnum sem bæði drífur hann áfram og stýrir. Ingólfur er stoltur og þakklátur og segir að verðlaunin hafi gríðarlega mikla þýðingu fyrir sig. „Iðnaðurinn í kringum hugmynd sem þessa er varla til staðar á Íslandi og þar af leiðandi hefur verið erfitt að veita henni brautargengi, þó að öllum hafi litist vel á hana." Jóhannes hefur í samstarfi við bandarískan samstarfsaðila þróað örþunnan loftræstibúnað fyrir hús sem er allt að tíu sinnum þynnri en sambærilegt öflugt tæki á markaðnum. Búnaðurinn á að veita inn fersku lofti, leysa rakavandamál og auka þannig heilnæmi bygginga. Jóhannes segir verðlaunin fela í sér mikla viðurkenningu. „Þetta er ákveðið upphaf því verðlaunaféð verður notað til að stofna fyrirtæki um verkefnið," segir hann. „Einnig vonast ég til að sú kynning sem verkefnið fær geti vakið áhuga réttra fjárfesta, sem sæju þau tækifæri sem í þessu verkefni felast. Í rökstuðningi dómnefndar segir að bæði þessi verkefni séu metnaðarfullar tækninýjungar og að þau geti leitt til verulegra umbóta í samfélaginu, sér í lagi varðandi orkunotkun, kostnað og umhverfi. „Hlutverk háskóla er kennsla, rannsóknir og nýsköpun," segir Ari Kristinn. „Á tímum sem þessum er sérstaklega mikilvægt að virkja þá krafta og þær hugmyndir sem fólk hefur og nýta háskólaumhverfið til að gera þær hugmyndir að veruleika. Þannig má stuðla að fjölbreyttari atvinnustarfsemi á Íslandi." Þetta er í fyrsta sinn sem Fræið er veitt. Stefnt er að því að keppnin verði haldin árlega. Auglýst var eftir hugmyndum í lok síðasta árs og var þátttakan mjög góð. Dómnefnd valdi vinningshafa úr fjölbreyttum hópi frumkvöðla. Í dómnefndinni eru: Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður Klaksins, Svafa Grönfeldt, fyrrverandi rektor HR, Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Auði Capital og Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris Invest.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira