Hundruð tómra íbúða hamla vaxtalækkun 25. febrúar 2010 06:15 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Þeir sem hyggja á íbúðarkaup á næstu árum munu ekki njóta betri lánskjara hjá Íbúðalánasjóði vegna aukins kostnaðar sjóðsins. Þetta er mat Greiningar Íslandsbanka, sem gagnrýnir litla vaxtalækkun Íbúðalánasjóðs í fyrradag. Bankinn telur lægri vexti íbúðalána geta blásið lífi í botnfrosinn fasteignamarkað. Íbúðalánasjóður lækkaði vexti um 0,05 prósent í 4,5 prósent á þriðjudag. Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir að miðað við góð kjör í síðasta útboði sjóðsins hafi hann getað lækkað vexti niður í 4,25 prósent. Á móti hafi þurft að hækka vaxtaálag vegna aukins rekstrarkostnaðar og vanskilaáhættu um 0,2 prósent. Guðmundur segir síðasta ár hafa verið sjóðnum erfitt og rekstrarkostnað hækkað mikið. Um nokkurra mánaða skeið hafi verið leitað leiða til að bæta fjárhagsstöðu hans án aðkomu ríkissjóðs. Í kjölfarið hafi vaxtaálag verið hækkað. „Ef vextir í útboði íbúðabréfa hefðu ekki lækkað hefðum við þurft að hækka vextina," segir hann. Guðmundur segir útilokað að segja til um hvenær vextir Íbúðalánasjóðs lækki enda stjórnist þeir af lánskjörum hverju sinni og fjármagnsþörf sjóðsins. Hann telur þó ósennilegt að vaxtaálag hækki frekar. Aukinn kostnaður skrifast að hluta á fjölda fasteigna sem Íbúðalánasjóður á. Sjóðurinn á nú fjögur hundruð fasteignir víða um land og bætast hundrað við í næsta mánuði á Reyðarfirði og Egilsstöðum. Guðmundur bendir á að í venjulegu árferði hafi Íbúðalánasjóður átt um fimmtíu til sextíu íbúðir og veltan verið ágæt. Nú sé algjört frost á markaðnum og íbúðirnar hreyfist ekki. Íbúðirnar eru flestar nýlegar og standa um þrjú hundruð þeirra auðar. Íbúðalánasjóður þarf að standa straum af rekstri þeirra. Guðmundur segir ástæðu þess að Íbúðalánasjóður hafi þurft að taka yfir margar fasteignir á Austurlandi þá að þar hafi verið farið of geyst á sama tíma og áætlanir um byggðaþróun tengdar álversframkvæmdum á Reyðarfirði hafi ekki gengið eftir. Útilokað er að segja til um hversu lengi sjóðurinn þarf að eiga íbúðirnar fimm hundruð. - jab
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira