Erlendir aðilar fá tæpa 90 milljarða í hendurnar 9. mars 2010 12:26
Nú í mánuðinum eru ríkisvíxlar að fjárhæð 20 milljarðar kr. á gjalddaga og þar af höfðu erlendir aðilar upphaflega keypt 16,7 milljarða kr. af þeim víxlum. Jafnframt er ríkisbréfaflokkurinn RIKB 10 0317 á gjalddaga eftir rétt rúma viku en sá flokkur er að langmestu leyti í eigu erlendra aðila. Þannig áttu erlendir fjárfestar um síðustu áramót ríflega 72 milljarða kr. af þeim 84 milljörðum kr. sem útistandandi eru í flokknum.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Það er því ljóst að erlendir aðilar munu fá um 89 milljarða kr. í hendurnar á næstunni.Mánaðarlegt útboð ríkisvíxla fer fram næstkomandi fimmtudag klukkan 11:00 hjá Lánamálum ríkisins. Í boði verða víxlar með gjalddaga 15. júlí 2010 og ræður hæsta samþykkta ávöxtunarkrafa kröfunni í öllum teknum tilboðum líkt og verið hefur undanfarna mánuði.„Við eigum von á töluverðum áhuga á útboðinu sem fer fram nú í vikunni og að erlendir aðilar verði þar atkvæðamiklir líkt og í undanförnum víxlaútboðum," segir í Morgunkorninu.Í ríkisvíxlaútboði febrúarmánaðar reyndist eftirspurn mikil og reyndist bæði fjárhæð heildartilboða og þeirra tilboða sem tekið var sú mesta síðan í útboði nóvembermánaðar. Þannig námu heildartilboð í flokkinn RIKV 10 0615 ríflega 37,4 milljörðum kr. að nafnverði og var tilboðum tekið fyrir 24,3 milljarða kr. á 7,85% flötum vöxtum.Jafnframt voru vaxtakjör ríkissjóðs betri í útboðinu en í ríkisvíxlaútboðinu í janúar þegar niðurstöðuvextir voru 8% enda höfðu skammtímavextir almennt lækkað nokkuð í kjölfar 50 punkta vaxtalækkunar Seðlabankans í janúarlok.„Ekki liggja enn fyrir upplýsingar um af hvaða tagi kaupendur ríkisvíxlanna voru í febrúar en við teljum þó líklegt að erlendir aðilar hafi verið þar fyrirferðamiklir. Í lok janúar áttu þeir 70% allra útistandandi ríkisvíxla," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira