Hagnaður Arion banka tæpir 8 milljarðar á fyrri helming ársins 16. september 2010 08:00
Hagnaður Arion banka samkvæmt könnuðum árshlutareikningi fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2010 nam 7,9 milljörðum króna eftir skatta. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 17,7% á ársgrundvelli. Í tilkynningu segir að með yfirtöku Kaupskila á 87% hlut í Arion banka þann 8. janúar 2010 styrktist eiginfjárstaða bankans þar sem Kaupskil lagði bankanum til nýtt eigið fé ásamt því að ríkið veitti bankanum víkjandi lán upp á 29 milljarða kr. Eiginfjárhlutfall bankans þann 30. júní 2010 var 16,4% sem er yfir 16% kröfu Fjármálaeftirlitsins. Jafnframt stenst Arion banki mjög rúmlega allar lausafjárkröfur eftirlitsaðila. Útlán til viðskiptavina námu 466,0 milljörðum kr. þann 30. júní samanborið við 357,7 milljarða kr. í árslok 2009. Aukningin er einkum tilkomin vegna nýrra útlána sem bankinn fékk í tengslum við eigendabreytingu 8. janúar síðastliðinn. Innlán námu 493,4 milljörðum kr. samanborið við 495,5 milljarða kr. í árslok 2009. Í lok tímabilsins voru 1.142 stöðugildi hjá bankanum samanborið við 1.157 í árslok 2009. Heildareignir námu 842,3 milljarða kr. þann 30. júní 2010 samanborið við 757,3 milljarða kr. í lok árs 2009.. Eigið fé bankans í lok júní 2010 var 101,4 milljarðar kr. en nam 89,9 milljörðum kr. í árslok 2009. „Uppgjörið fyrir fyrstu sex mánuði ársins er í takt við væntingar og sýnir vaxandi fjárhagslegan styrk bankans," segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka. „En hið efnahagslega umhverfi er og verður krefjandi og þá ekki síst vegna þeirrar óvissu sem ríkir vegna erlendra lána. Bankinn hefur farið ítarlega yfir hugsanleg áhrif þeirra á efnahag bankans og mun bankinn í öllum tilfellum uppfylla kröfu laganna um 8% eiginfjárhlutfall fjármálastofnanna."
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira