Slitastjórn Landsbankans íhugar skaðabótamál 24. febrúar 2010 18:58
Slitastjórn Landsbankans telur fullt tilefni vera til skaðabótamáls á hendur fyrrverandi stjórnendum bankans. Ekkert verður skilið undan og öllum steinum velt við segir lögmaður í slitastjórninni. Kröfur gætu numið milljörðum króna. Slitastjórn Landsbankans hefur rannsakað málefni bankans frá því hún var skipuð fyrir tæpu ári. Um mitt síðasta sumar voru ráðnir sérfræðingar sem hafa síðan þá skoðað hvort eitthvað misjafnt hafi átt sér stað fyrir hrunið og hvort starfsmenn hafi gert einhverjar ráðstafanir sem gætu reynst bótaskyldar. Samkvæmt hlutafélagalögum eru stjórnarmenn og framkvæmdastjórar skyldir til að bæta hlutafélagi það tjón sem þeir hafa valdið því í störfum sínum. Halldór Helgi Backman, lögmaður í slitastjórn Landsbanka Íslands, segir rannsóknina ganga vel. Öllum steinum sé velt við. „Við teljum svo vera. Það er hins vegar ekki hægt að upplýsa um nánari efnistök á þessari stundu. Við þurfum fyrst að komast að hinu sanna. Þegar það er komið þá upplýsum við um okkar niðurstöður við kröfuhafa og í kjölfar þess geta það orðið opinberar upplýsingar," segir Halldór aðspurður hvort slitastjórnin hafi rekist á eitthvað sem gefi tilefni til að höfða skaðabótamál. Málin geti skipt tugum á endanum. Halldór segir kröfurnar geta numið háum fjárhæðum. „Ef um kröfur verður að ræða þá eru það væntanlega einhverjir milljarðar eða hærri tölur en það er of snemmt að segja til um það."
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira