Viðskipti innlent

Mjatla fasteignum á markaðinn

Grétar Jónasson
Grétar Jónasson

Félag fasteignasala (FF), bankar og Íbúðalánasjóður hafa haft samráð vegna þess mikla fjölda fasteigna sem lánafyrirtækin eiga. Fyrirtækin munu ekki setja fasteignir í stórum stíl inn á markaðinn, enda myndi það ganga þvert á hagsmuni þeirra með fyrirsjáanlegum verðlækkunum.

Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri FF, segir félagið hafa fundað með lánastofnunum og vilji um framhaldið liggi fyrir. Hann óttast því ekki að eignasöfnunin hafi áhrif á fasteignamarkaðinn. „Bankarnir verða að tryggja sína hagsmuni sem fara saman við aðra á þessum markaði; að tryggja sölu eigna á sem bestu verði. Þetta verður gert faglega með því að mjatla þessum eignum smátt og smátt inn á markaðinn.“

Almennt telur Grétar að tími breytinga nálgist á fasteignamarkaði. Dómur Hæstaréttar muni, ef að líkum lætur, gera einstakar eignir söluhæfar. „Það er gríðarleg undirliggjandi eftirspurn á fasteignamarkaðnum vegna þess að þrjár kynslóðir hafa ekki skilað sér vegna hrunsins. Fjölmargir hafa verið að bíða og sjá hvað verður með lánin og fasteignaverðið almennt. - shá






Fleiri fréttir

Sjá meira


×