Hátt í 40 manns bætast á atvinnuleysisskrá daglega Helga Arnardóttir skrifar 12. janúar 2010 12:12
Rúmlega þrjú hundruð manns hafa bæst við á atvinnuleysiskrá frá áramótum og áætlar vinnumálastofnun að hátt í fjörutíu manns bætist á skrána á hverjum virkum degi út janúar mánuð. Um sextán þúsund manns eru á atvinnuleysisbótum í dag.Alls bárust Vinnumálastofnun tilkynningar um uppsagnir tæplega átján hundruð manns í hópuppsögnum í fyrra. Mestur var fjöldinn í mannvirkjagerð og fjármálastarfsemi en einnig í iðnaði og flutningastarfsemi. Þær hópuppsagnir sem tilkynntar voru á árinu 2009 hafa flestar komið til framkvæmda nú þegar, flestir sem hópuppsagnirnar náðu til misstu vinnuna í ágúst eða um 370 manns og um 250 manns í september. Nálægt 200 manns munu svo missa vinnuna í febrúar.Karl Sigurðsson forstöðumaður vinnumálasviðs segir að rúmlega þrjú hundruð manns hafi bæst við á atvinnuleysisskrá frá áramótum og áætlar að hátt í fjörutíu á dag bætist við skrána á hverjum virkum degi út janúar mánuð. Skýringin sé sú að margar uppsagnir taka gildi núna auk nokkurra gjaldþrota. Reynslan sýni hins vegar að það hægist á nýskráningum í febrúar.Nú mælist atvinnuleysi um átta og hálft prósent en mest var það í apríl í fyrra eða 9,1 % þegar tæplega sautján þúsund manns voru atvinnulausir. Karl segist þó gera ráð fyrir að atvinnuleysi fari um eða yfir 10% í febrúar og mars. Verði það að veruleika er það mesta atvinnuleysi sem mælst hefur hér á landi.
Mest lesið „Það er hægt að byrja að fjárfesta með fimm þúsund krónum á mánuði“ Atvinnulíf Rukkuð um sex þúsund kall eftir lagningu á Snæfellsnesi Neytendur Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Bretland aftur inn í Reiki í Evrópu hjá Sýn og Símanum Neytendur „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Samstarf „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Viðskipti innlent Kvartanir vegna bílastæðamála daglegt brauð hjá Neytendastofu Neytendur Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Viðskipti erlent Fleiri fréttir „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Sjá meira