Jólin

Rétt meðhöndlun á jólatré - myndir

Til þess að tryggja að jólatréð nái að taka til sín vatn er ráðlagt að saga þunna sneið neðan af stofninum, enda þarf oft að rétta stofninn af áður en trénu er stungið í jólatrésfótinn.
Til þess að tryggja að jólatréð nái að taka til sín vatn er ráðlagt að saga þunna sneið neðan af stofninum, enda þarf oft að rétta stofninn af áður en trénu er stungið í jólatrésfótinn.
Mikil meirihluti heimila landsins eru með „lifandi" jólatré og vilja að þau haldist falleg öll jólin og felli sem minnst barr.

Hann Bjarni í „jólatrésskógi" Blómvals ráðleggur okkur að bleyta jólatréð vel áður en það er tekið inn,m ef þess er kostur, því það gefur meiri barrheldni.

Gæta þarf þess að vera með hæfilega stóran jólatrésfót, sem samvarar stærð trésins.
Til þess að tryggja að jólatréð nái að taka til sín vatn er ráðlagt að saga þunna sneið neðan af stofninum, enda þarf oft að rétta stofninn af áður en trénu er stungið í jólatrésfótinn.

Með því að dýfa endanum niður í sjóðandi vatn þegar búið er að saga af stofninum er æðarnar í stofninum víkkaðar út og tréð á auðveldara með að taka til sín vatn. Þetta á sérstaklega við um íslenska rauðgrenið.

Gæta þarf þess að vera með hæfilega stóran jólatrésfót, sem samvarar stærð trésins, þannig að það standi örugglega þegar það er komið inn í stofu.

Skýringar má sjá á meðfylgjandi myndum.

1. Hér eru jólatrésfótur og tré tilbúin að fara inn í stofu.
2. Byrjað er á að saga þunna sneið neðan af stofninum, bæði til að rétta stofninn af þannig að hann felli rétt ofan í fótinn og eins til að örva vatnsupptökuna.
3. Stilliskrúfurnar eru hertar jafn að til þess að tréð sandi beint í fætinum.
4. Gæta þarf þess að herða skrúfurnar jafnt.
5. Þegar búið er að reisa tré upp er lokastillingin framkvæmd.
6. Jólatréð tilbúið að fara inn í stofu.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×