Ávöxtunarkrafa á aflahlutdeild hefur minnkað verulega frá 1992 3. júní 2010 13:49 Aukin óvissa um framtíð fiskveiðistjórnunar síðustu ár kann að hafa dregið úr viðskiptum. Mynd/Stefán Karlsson
Óvissa um framtíð stjórnunar fiskveiða getur bæði haft áhrif á verð á aflamarki og aflahlutdeildum. Mikilvægt er að lágmarka þá óvissu og fastmóta stefnu til framtíðar sem ekki er hvikað frá. Þetta kemur fram í skýrslu frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu sem ber heitið Skilvirkni markaða fyrir aflaheimildir. Aukin óvissa um framtíð fiskveiðistjórnunar síðustu ár kann að hafa dregið úr viðskiptum, sem og minna aflamark, sérstaklega í þorski. Erfið fjárhagsstaða útgerða eftir hrun hefur einnig torveldað viðskipti, segir í skýrslunni. Viðskiptin séu eigi að síður lífleg. Viðskiptum hefur fækkað í takt við fækkandi útgerðir, en þau hafa eigi að síður verið mikil. Enda þótt dregið hafi úr viðskiptum með aflahlutdeildir í aflamarkskerfinu hin síðari ár – og þá sérstaklega eftir hrunið haustið 2008 – eru viðskipti með aflamark lífleg. Undanfarin ár hafa viðskipti á hverju fiskveiðiári svarað til 35-40% af úthlutuðu aflamarki hvers árs. Svo virðist sem sú ávöxtunarkrafa sem handhafar aflahlutdeilda gera hafi minnkað verulega frá 1992. Þá var hún ríflega 20% en fór hæst í 33% árið 1994. Á þessum árum var ávöxtunarkrafan mun hærri en raunvextir af skuldabréfum, en bilið þar á milli fór síðan minnkandi. Undanfarin ár hefur ávöxtunarkrafan verið minni en 10%, lítið hærri en raunvextir, en vísbendingar eru um að arðsemiskrafan hafi farið hækkandi árið 2008. Í skýrslunni segir að þessi markaður sé skilvirkur.
Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Sjá meira