Viðskipti innlent

Um sextíu ágreiningsmál fyrir dómstólum

Sigríður Mogensen skrifar
Heildarfjárhæð lýstra krafna í þrotabú Kaupþings nemur nú um 6.800 milljörðum króna, en tæplega 28 þúsund kröfur eru skráðar í kröfuskrá þrotabúsins. Slitastjórn á eftir að taka afstöðu til um 3.500 krafna, sem samsvara um 2.200 milljörðum króna. Að langmestu leyti er um að ræða skuldabréfakröfur.

Kröfuhafafundur var haldinn í morgun, í þriðja sinn á árinu, en á fundinum var farið yfir afstöðu til krafna. Næsti kröfuhafafundur verður 3. desember næstkomandi, og stefnir slitastjórn bankans að því að klára yfirferð allra krafna fyrir þann fund.

Yfir 6.500 mótmæli bárust gegn afstöðu slitastjórnar til viðurkenningar krafna eftir kröfuhafafund í maí. Sátt hefur náðst í einhverjum málum og þá hafa sumir kröfuhafar dregið mótmæli sín til baka. Slitastjórn hefur þegar vísað á sjötta tug ágreningsmála til Héraðsdóms Reykjavíkur. Allt stefnir í að endanlegar dómsniðurstöður liggi fyrir í einhverjum ágreiningsmálum á síðari hluta næsta árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×