Viðskipti innlent

Litlar breytingar á vísitölum skuldabréfa

Mjög litlar breytingar voru á skuldabréfamarkaði í dag í tæplega 10 milljarða kr. viðskiptum. Voru allar skuldabréfavísitölur GAMMA nánast óbreyttar. Heildarvelta með verðtryggð bréf var um 2 milljarðar kr. og óverðtryggð bréf tæplega 8 milljarða kr.

 

 

 

Vísitala............ Gildi.....,,1 dagur......1 vika

GAMMA:GBI.... 181,16...-0,01%...... 0,83%

GAMMAi:Vtr.....185,73... -0,03%..... 0,94%

GAMMAxi:Óvtr. 161,1..... 0,03%...... 0,54%

Heildarvelta Skuldabréfa: 9,73 ma

Heildarvelta Íbúðabréfa (verðtryggð): 1,98 ma

Heildarvelta Rikisbréfa (óverðtryggð): 7,75 ma

Vísitölurnar eru settar 100 þann 1. janúar 2005 og sýna heildarávöxtun helstu skuldabréfa á markaði (Íbúðabréf og Ríkisbréf með viðskiptavakt). Skuldabréfin eru hlutfallsvigtuð miðað við markaðsverðmæti þeirra í hlutfalli af heildarmarkaðsverðmæti bréfa í vísitölunni. Birting ofangreindra upplýsinga er heimil gegn því að heimildar sé getið. Skuldabréfavísitölur GAMMA eru reiknaðar og birtar af GAM Management hf., óháðu og sérhæfðu fjármálafyrirtæki með starfsleyfi frá FME sem tekur til reksturs verðbréfasjóða og fjárfestingarráðgjafar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×