Endurskoðendur fá á baukinn hjá rannsóknarnefnd 12. apríl 2010 12:20 Það er mat rannsóknarnefndarinnar að þessi skýrslugerð endurskoðenda hafi í flestum tilvikum verið mjög ófullkomin og ekki í samræmi við fyrrnefnd fyrirmæli.
Það er álit rannsóknarnefndar Alþingis að skort hafi á að endurskoðendur sinntu nægilega skyldum sínum við endurskoðun reikningsskila fjármálafyrirtækjanna árið 2007 og við hálfársuppgjör 2008, að því er varðar rannsókn þeirra og mat á virði útlána til stærstu viðskiptaaðila fyrirtækjanna, meðferð á hlutabréfaeign starfsmanna og fyrirgreiðslu fjármálafyrirtækja til kaupa á hlutabréfum í sjálfum sér.Þetta kemur fram í skýrslu nefndarinnar þar sem endurskoðendur bankanna fá á baukinn fyrir að hafa alls ekki sinnt starfs sínu sem skyldi. Vil rannsóknarnefndin að endurskoðendur verði rannsakaðir sérstaklega.Í skýrslunni segir að í þessu sambandi verður að árétta að aðstæður höfðu á þessum tíma þróast með þeim hætti að tilefni var til þess að gefa þessum atriðum sérstakan gaum.Samkvæmt reglum um endurskoðun fjármálafyrirtækja bar endurskoðanda, að lokinni hefðbundinni endurskoðunarvinnu, að senda stjórn viðkomandi fjármálafyrirtækis sérstaka endurskoðunarskýrsluþar sem gerð væri m.a. grein fyrir helstu niðurstöðum endurskoðunarkannana á innra eftirliti fjármálafyrirtækisins og áliti endurskoðanda á gæðum innra eftirlitskerfis stofnunarinnar og starfsemi innri endurskoðunardeildar.Það er mat rannsóknarnefndarinnar að þessi skýrslugerð endurskoðenda hafi í flestum tilvikum verið mjög ófullkomin og ekki í samræmi við fyrrnefnd fyrirmæli.Í lögum um fjármálafyrirtæki og reglum um endurskoðun fjármálafyrirtækja segir m.a. að fái endurskoðandi vitneskju um verulega ágalla á rekstri eða atriði er varða innra eftirlit, greiðslutryggingu útlána eða önnur atriði, sem veikt geta fjárhagsstöðu hlutaðeigandi fyrirtækis, eigi hann að upplýsa bæði stjórn fyrirtækisins og Fjármálaeftirlitið um það. Þetta á einnig við um sambærileg atriði sem endurskoðandi kemst á snoðir um og varða fyrirtæki í nánum tengslum við hlutaðeigandi fjármálafyrirtæki.Við skýrslutöku hjá rannsóknarnefnd Alþingis voru endurskoðendur fjármálafyrirtækjanna spurðir hvort þeir hefðu upplýst Fjármálaeftirlitið í samræmi við framangreind ákvæði. Svör þeirra voru á öll einn veg, að þeir hefðu aldrei fram að falli bankanna komið slíkri ábendingu á framfæri við Fjármálaeftirlitið.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira