Aðalhagfræðingur: Forseti Íslands skýtur sig í fótinn 9. mars 2010 10:31
Harald Magnus Andreassen aðalhagfræðingur First Securites í Noregi segir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti íslands sé að skjóta sig í fótinn með því að gagnrýna Norðmenn fyrir að styðja ekki við bakið á Íslendingum. Það sé stundarbrjálæði að reyna að varpa einhverri sök á Norðmenn. „Það er brjálæði að Íslendingar séu að varpa sök á Norðmenn. Forsetinn er að hengja bakara fyrir smið," segir Andreassen í samtali við vefsíðuna e24.no. „Noregur eða önnur lönd bera engar skyldur gagnvart Íslendingum. Hverjir aðrir en Íslendingar eiga að bera tapið? Þeir eru einir um að bera ábyrgðina á þeim mistökum sem gerð hafa verið." Andreassen bendir á að íslensk stjórnvöld ákváðu að bjarga sínum eigin innistæðueigendum með því að taka á sig tapið af hruni íslensku bankanna. Hollenskir og breskir innistæðueigendur með Icesave reikninga hafi ekki enn fengið sitt tap borgað. „Eitt er að ræða um vexti og lánaskilmála. En þeir (Íslendingar) geta ekki vænst þess að Bretar, Hollendingar eða Norðmenn...skuli bera tapið meðan Íslendingar bjarga aðeins sínu fólki," segir Andreassen. Orð Andreassen koma í framhaldi af því að forseti Íslands hefur ásakað hinar Norðurlandaþjóðirnar, og þá einkum Norðmenn, um að draga lappirnar í að aðstoða Íslendinga með því að krefjast þess að Icesave deilan leysist áður en lán þeirra verði veitt til Íslands. Þessi ummæli hafa vakið mikla athygli á hinum Norðurlöndunum og er forsetinn víða harðlega gagnrýndur fyrir þau. Andreassen bendir á að Íslendingar hafi gert sín eigin mistök með því að leyfa hagkerfi sínu að blása út. „Það voru margir sem gærddu á þessu um langan tíma, ekki bara 30 til 40 bankastjórnendur," segir hann. Ennfremur bendir Andreassen á að tæplega 90% af eignum Landsbankans muni fást upp í Icesave skuldina og það sem Íslendingar þurfi að greiða nemi aðeins um fjórðungi af heildarskuldinni upp á um 30 milljarða norskra kr. „Það er reiknað með að hin endanlega upphæð muni nema um einu prósenti af landsframleiðslunni í 30 ár. Þrátt fyrir að það sé ergilegt er samt um smápeninga að ræða í raun," segir Andreassen.
Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Sjá meira