Vátryggingarfélög skulu rekin sem hlutafélög 25. júní 2010 10:53
Nýverið tóku gildi lög um vátryggingastarfsemi sem leystu af hólmi eldri lög. Meðal nýmæla í lögunum er að vátryggingarfélög skulu hér eftir verða rekin sem hlutafélög. Fjallað er um málið á vefsíðu Fjármálaeftirlitsins. Þar segir að lögin gilda um frumtryggingastarfsemi á sviði skaðatrygginga og persónutrygginga auk hvers konar endurtrygginga en eftirlit með þeim er sem fyrr í höndum Fjármálaeftirlitsins. Auk staðfestingar á tilteknum þáttum gildandi réttar á vátryggingamarkaði fela lögin í sér ýmis nýmæli. Meðal þeirra helstu er að vátryggingafélög skulu nú rekin sem hlutafélög, starfsleyfisveitandi á vátryggingamarkaði er Fjármálaeftirlitið í stað efnahags- og viðskiptaráðherra áður, auk þess sem strangari kröfur eru gerðar til stjórnar og stjórnarmanna vátryggingafélaga en áður var. Varðandi síðastgreint má nefna að stjórn skal samkvæmt lögunum setja reglur, sem staðfestar skulu af Fjármálaeftirlitinu, um innra eftirlit, innri endurskoðun, fjárfestingarstarfsemi, lánveitingar og viðskipti við tengda aðila. Samkvæmt 55. gr. laganna er kveðið á um tiltekin skilyrði sem vátryggingafélög þurfa að uppfylla til þess að gera megi starfslokasamning við framkvæmdastjóra eða aðra lykilstarfsmenn eða viðhafa kaupaukakerfi en ekki var kveðið á um slíkt í eldri lögum. Loks má nefna að samkvæmt nýju lögunum varðar brot gegn ákvæðum laganna um eignir til jöfnunar vátryggingaskuldar (títtnefnt „bótasjóður") nú fésektum eða fangelsi í stað einungis stjórnvaldssekta eins og áður var. Fjármálaeftirlitið hefur þegar hafið athugun á því hjá eftirlitsskyldum aðilum á vátryggingamarkaði hvernig þeir munu kynna starfsmönnum sínum hin nýju lög.
Mest lesið Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Sjá meira