Stjórnendur vildu Jóhannes 13. febrúar 2010 06:00 finnur Arion Banki réð örlögum Haga en ekki Samskipa, segir bankastjóri Finnur Sveinbjörnsson.Fréttablaðið /valli
Ekki er ólíklegt að tilboð Jóhannesar Jónssonar, stofnanda Bónuss, stjórnenda Haga og viðskiptafélaga, sem hópurinn lagði fram í sextíu prósenta hlut Arion Banka í Högum í nóvember í fyrra hafi verið hagstæðara en skráning félagsins á markað, að sögn Finn Sveinbjörnssonar, bankastjóra Arion Banka. Ekkert hefur verið gefið upp um tilboðið og vill Finnur ekki segja hversu mikill munur sé á því og þeim áætlunum sem bankinn hafi gert um markaðsverðmæti félagsins. Eftir því sem næst verður komist lögðu stjórnendur Haga ríka áherslu á að Jóhannes Jónsson yrði stjórnarformaður félagsins og yrði á meðal hluthafa. Finnur vildi ekki staðfesta það í samtali við Fréttablaðið. Finnur sat fyrir svörum viðskiptanefndar Alþingis um fyrirhugaða skráningu Haga í Kauphöll. Jafnframt var komið inn á málefni Samskipa, en Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður félagsins, og stjórnendur ráða meirihluta í félaginu eftir endurskipulagningu þess. Finnur sagði fyrir nefndinni muninn þann að bankinn hafi þegar verið búinn að taka Haga yfir og því haft sitt að segja um örlög félagsins. Í hinu tilvikinu hafi hollenski bankinn Fortis, sem var helsti kröfuhafi Samskipa, ráðið för. - jab
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira