Ray Allen: Það er pláss fyrir Shaq í Boston-liðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. ágúst 2010 17:45 Þríeykið í Boston. Mynd/Getty Images
Ray Allen segir að það sé pláss í Boston liðinu fyrir Shaquille O'Neal sem skrifaði undir tveggja ára samning við Celtics-liðið í síðustu viku. Margir líta á komandi vetur sem síðasta tækifærið fyrir Boston-liðið að vinna NBA-meistaratitilinn með þríeykið Paul Pierce, Kevin Garnett og Allen í fararbroddi en þeir unnu saman titilinn árið 2008. „Þetta er mjög áhugavert að mínu mati og ég er viss um að Shaq geti hjálpað okkur. Við höfum verið í vandræðum með fráköstin í bæði vörn og sókn og Shaq er með stóran skrokk og ætti að geta hjálpað okkur þar," sagði Ray Allen. Ray Allen var ekki viss um að koma aftur til Boston eftir tapið á móti Los Angeles Lakers í lokaúrslitum í júní og segir góðan vin sinn hafa meira að segja verið að senda honum íbúðir sem voru til sölu í Miami. „Það þurftu allir að hreinsa hugann. Um leið og allt róaðist á ný þá sáum við allir sem einn að við erum enn með mjög gott lið og við vildum ekki gefa þetta tækifæri frá okkur," sagði Allen. Ray Allen segir að það verði mjög erfitt fyrir Miami Heat að spila með alla þessa pressu á sér en það búast allir við að LeBron James og Dwyane Wade vinni titilinn eftir að þeir ákváðu að spila saman. „Það var mjög erfitt fyrir okkur að spila árið 2008 þegar allir voru að spá okkur titlinum frá fyrsta degi," sagði Allen.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira